Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Starfsmaður í búsetuþjónustu fyrir fatlað fólk

Vilt þú sinna fjölbreyttu og gefandi starfi þar sem þú stuðlar að lífsgæðum og sjálfstæði fólks?

Reykjanesbær leitar að jákvæðum og ábyrgum einstaklingum í 80% starf á heimili fyrir fatlað fólk. Við leitum að einstaklingum sem búa yfir góðri samskiptahæfni, sýna frumkvæði og hafa áhuga á að styðja fólk í daglegu lífi á eigin forsendum.

Í starfinu felst að veita íbúum með umfangsmiklar stuðningsþarfir einstaklingsmiðaða aðstoð og umönnun. Áhersla er lögð á að skapa hlýlegt og öruggt heimili, virða sjálfsákvörðunarrétt íbúa og styðja þá til þátttöku í samfélaginu út frá óskum, áhuga og þörfum hvers og eins.

Á velferðarsviði Reykjanesbæjar vinnum við að því að efla lífsgæði og sjálfstæði fólks. Við leggjum áherslu á hlýleg samskipti, faglega þjónustu og að hver einstaklingur hafi áhrif á eigið líf. Í starfi okkar endurspeglum við jafnframt gildi Reykjanesbæjar: virðingu, eldmóð og framsækni.

Starfið tilheyrir velferðarsviði og næsti yfirmaður er forstöðumaður búsetuþjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Veita íbúum stuðning og umönnun í daglegu lífi með virðingu, nærgætni og valdeflingu að leiðarljósi.
  • Aðstoða við persónulega umhirðu, klæðnað og aðrar daglegar athafnir.
  • Styðja íbúa við heimilishald, svo sem matseld, innkaup, þrif og þvotta, og stuðla að notalegu heimili.
  • Huga að næringu og líkamlegri og andlegri vellíðan íbúa.
  • Styðja íbúa við félagslega þátttöku, tómstundir, vinnu, dagþjónustu eða nám eftir áhuga og þörfum.
  • Fylgja íbúum í erindum utan heimilis, meðal annars til heilbrigðisþjónustu, í samráði við forstöðumann.
  • Vinna eftir þjónustu- og einstaklingsáætlunum og fylgja verklagi þjónustunnar.
  • Eiga gott samstarf við íbúa, aðstandendur, samstarfsfólk og aðra þjónustuaðila.
  • Taka þátt í starfsmannafundum og sinna öðrum verkefnum samkvæmt starfslýsingu og í samráði við yfirmann.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Grunnskólapróf.
  • Reynsla af starfi með fötluðu fólki.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum og vilji til að vinna í teymi.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð og ábyrgð í starfi.
  • Frumkvæði, sveigjanleiki og jákvætt viðmót.
  • Þjónustulund og næmni fyrir ólíkum óskum og þörfum fólks.
  • Góð íslenskukunnátta í mæltu og rituðu máli.

Hlunnindi:

  • Bókasafnskort
  • Gjaldfrjáls aðgangur að menningarhúsum
  • Gjaldfrjáls aðgangur í sund
  • Gjaldfrjáls aðgangur í strætó

Nánari upplýsingar

Um 80% störf er að ræða og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Launakjör eru í samræmi við samning Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.

Sótt er um starfið á vef Reykjanesbæjar undir Laus störf. Umsókn um starfið skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið ásamt upplýsingum um umsagnaraðila. Öllum umsóknum verður svarað.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Further information: Kristín Ósk Bergsdóttir forstöðþroskaþjálfi, netfang kristin.o.bergsdottir@reykjanesbaer.is S. 869 9677

Application deadline until 09.11.26

Apply for job