Agenda
1. Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs 11. júlí 2025 (2025010011)
Lögð fram fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs til samþykktar. Eftirfarandi mál fundargerðarinnar frá 11. júlí tekin fyrir til sérstakrar samþykktar.
Þriðja mál fundargerðarinnar, Stefna um starfsmannaíbúðir á Suðurnesjum (2024080039). Bæjarráð vísar málinu til fyrri umræðu í bæjarstjórn 19. ágúst 2025.
Fjórða mál fundargerðarinnar, Samþykkt um götu- og torgsölu (2024090334) samþykkt 5-0 án umræðu.
Tíunda mál fundargerðarinnar, Vitabraut 7 – deiliskipulagsbreyting (2025070054) samþykkt 5-0 án umræðu.
Ellefta mál fundargerðarinnar, Hreinsistöð í Höfnum (2025070018) samþykkt 5-0 án umræðu.
Fjórtánda mál fundargerðarinnar, Tjarnabraut 40 - stækkun á byggingarreit (2025070045) samþykkt 5-0 án umræðu.
Fimmtánda mál fundargerðarinnar, Njarðvíkurbraut 31 (2024120066) samþykkt 5-0 án umræðu.
Sextánda mál fundargerðarinnar, Sunnubraut 36 (2025060360) samþykkt 5-0 án umræðu.
Átjánda mál fundargerðarinnar, Baugholt 3 - bílastæði (2025070022) samþykkt 5-0 án umræðu.
Nítjánda mál fundargerðarinnar, Baugholt 15 - bílastæði (2025070036) samþykkt 5-0 án umræðu.
Tekið fyrir mál 28, Umsókn um lóð – Grænásbraut 2 (2025070120). Bæjarráð samþykkir 5-0 að málið verði unnið frekar í samræmi við umræður á fundinum. Málinu vísað til Halldóru Fríðu Þorvaldsdóttur starfandi bæjarstjóra.
Fundargerðin samþykkt að öðru leyti 5-0.
2. Tómstundastefna Reykjanesbæjar (2023050566)
Ólafur Bergur Ólafsson frístundaráðgjafi mætti á fundinn.
Bæjarráð fagnar góðri vinnu við tómstundastefnu Reykjanesbæjar og vísar henni í fyrri umræðu í bæjarstjórn 19. ágúst 2025.
3. Frímúrarastúkan Sindri - skrúðgarðurinn í Njarðvík (2021080179)
Margrét Lilja Margeirsdóttir deildarstjóri umhverfismála og Berglind Ásgeirsdóttir garðyrkjustjóri mættu á fundinn og kynntu erindi frá Frímúrarastúkunni Sindra.
Lögð fram drög að samkomulagi milli Frímúrarareglunnar Sindra og Reykjanesbæjar vegna skrúðgarðsins í Njarðvík.
Bæjarráð fagnar erindinu og felur Margréti Lilju Margeirsdóttur deildarstjóra umhverfismála og Berglindi Ásgeirsdóttur garðyrkjustjóra að vinna áfram í málinu.
4. Grjóthleðslur í Höfnum - beiðni um stuðning (2025070026)
Tekin fyrir beiðni um fjárhagslegan stuðning til að halda grjóthleðslunámskeið, að Reykjanesbær greiði laun fornleifafræðings og grjóthleðslukennara og fjármagni leigu á tækjabúnaði.
Bæjarráð fagnar framtakinu en hafnar verkefninu þar sem ekki er gert ráð fyrir því í fjárhagsáætlun sveitarfélagsins.
5. Netárásir á sveitarfélög (2025070195)
Andri Örn Víðisson deildarstjóri upplýsingatæknideildar mætti á fundinn og upplýsti bæjarráð um stöðu netmála hjá sveitarfélaginu.
6. Fjárskyn ehf. - umsókn um tækifærisleyfi (2025070161)
Erindi Sýslumannsins á Suðurnesjum vegna umsóknar um tækifærisleyfi. Bæjarráð tekur jákvætt í erindið.
Nothing else was done and the meeting was adjourned at 10:23.