Agenda
1. Mælaborð janúar-júní 2025 (2025060044)
Hera Ósk Einarsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs og Guðlaugur Helgi Sigurjónsson sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs mættu á fundinn og fóru yfir mælaborð sinna sviða tengt sex mánaða uppgjöri.
Mælaborð lögð fram til upplýsinga.
2. Fjárhagsáætlun 2026-2029 (2025060320)
Regína Fanný Guðmundsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs mætti á fundinn.
Lagt fram minnisblað - Rammi fjárheimilda 2026.
3. Útboð vátrygginga Reykjanesbæjar og Tjarnargötu 12 ehf. (2025080266)
Margrét A. Sanders vék af fundi undir málinu.
Kristinn Þór Jakobsson innkaupastjóri mætti á fundinn í gegnum fjarfundabúnað.
Lagt fram minnisblað um útboð á vátryggingum Reykjanesbæjar og Tjarnargötu 12 ehf.
Bæjarráð samþykkir 4-0 að taka tilboði TM í vátryggingar fyrir Reykjanesbæ og Tjarnargötu 12 ehf. en vísar ákvörðun um töku tilboðs í vátryggingar Reykjaneshafnar til atvinnu- og hafnarráðs.
4. Fjörheimar - umsókn um tækifærisleyfi (2025080182)
Erindi Sýslumannsins á Suðurnesjum vegna umsóknar um tækifærisleyfi. Bæjarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti.
5. Umsögn um geymslustað ökutækja í útleigu - Iceland Diamond ehf., Klettatröð 11A (2025080296)
Erindi Samgöngustofu vegna umsóknar um leyfi fyrir geymslustað ökutækja vegna ökutækjaleigu. Lögð fram umsögn byggingarfulltrúa Reykjanesbæjar. Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti með vísan til fyrirliggjandi umsagnar.
6. Fundargerð stjórnar Kölku sorpeyðingarstöðvar sf. 10. júní 2025 (2025010370)
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Kölku sorpeyðingastöðvar sf.
7. Fundargerð stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum 13. ágúst 2025 (2025010161)
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum.
Nothing else was done and the meeting was adjourned at 10:40.