Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

1539. fundur bæjarráðs Reykjanesbæjar

Fundurinn var haldinn þann 20. November 2025 kl. 08.15.

Fundarstaður: Grænásbraut 910 - Seltjörn

Viðstaddir: Bjarni Páll Tryggvason- aðalmaður, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir formaður nefndar, Margrét Ólöf A Sanders- aðalmaður, Margrét Þórarinsdóttir aðalmaður, Sverrir Bergmann Magnússon- varamaður

Að auki sátu fundinn Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri, Helga María Finnbjörnsdóttir áheyrnarfulltrúi og Hrefna Gunnarsdóttir ritari.

Guðný Birna Guðmundsdóttir boðaði forföll, Sverrir Bergmann Magnússon sat fyrir hana.

Bæjarráð samþykkir 5-0 að taka á dagskrá málið Þjónustumiðstöð Nesvöllum - rekstur eldhúss (2023070388). Fjallað er um málið undir dagskrálið 9.

Agenda

1. Fjárhagsáætlun 2026-2029 (2025060320)

Regína Fanný Guðmundsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs mætti á fundinn.

Umræður um fjárhagsáætlun sveitarfélagsins 2026-2029.

2. Félagslegt húsnæði - eignasafn, biðlisti og biðtími eftir úthlutun (2025020341)

Hilma H. Sigurðardóttir teymisstjóri virkni- og ráðgjafarteymis mætti á fundinn.

Lögð fram svör vegna fyrirspurnar bæjarráðs um félagslegt leiguhúsnæði og óhagnaðardrifin leigufélög í Reykjanesbæ.

3. Heilbrigðisstofnun Suðurnesja - bílastæði (2024070281)

Lagt fram erindi frá húsnæðisnefnd HSS um fjölgun á bílastæðum við stofnunina.

Bæjarráð telur tillöguna í framlögðu erindi ekki vera góðan kost og óskar eftir að umhverfis- og framkvæmdasvið vinni að því að finna heppilegri lausn í samvinnu við húsnæðisnefnd HSS.

Bæjarráð felur Kjartani Má Kjartanssyni bæjarstjóra að vinna áfram í málinu. 

4. Sjálfbærniuppgjör Reykjanesbæjar 2024 (2021010385)

Lögð fram skýrsla um sjálfbærniuppgjör Reykjanesbæjar fyrir árið 2024.

5. Fundargerð Sambands sveitafélaga á Suðurnesjum 10. nóvember 2025 (2025010161)

Lögð fram til kynningar fundargerð Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum.

Bæjarráð tekur undir bókun Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum sem fram kemur í níunda máli fundargerðarinnar vegna uppbyggingu varnagarða við Grindavík og Svartsengi.

6. Dýravaktin - beiðni um styrk (2025110270)

Lagt fram erindi um fjárhagslegan stuðning við verkefni tengt dýravelferð.

Bæjarráð þakkar fyrir erindið en getur því miður ekki orðið við því að þessu sinni.

7. Ársfundur Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum (2025110319)

Lagt fram fundarboð um ársfund Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum 27. nóvember 2025.

9. Þjónustumiðstöð Nesvöllum - rekstur eldhúss (2023070388)

Kristinn Jakobsson innkaupastjóri mætti á fundinn.

Kynning á umsækjendum sem svöruðu auglýsingu um rekstur framleiðslueldhúss og veitingasalar í þjónustumiðstöðinni Nesvöllum.


Bæjarráð felur innkaupastjóra að vinna áfram í málinu.

Nothing else was done and the meeting was adjourned at 12:27.