Agenda
1. Málefni Golfklúbbs Suðurnesja (2024120279)
Unnar Steinn Bjarndal bæjarlögmaður og Hafþór B. Birgisson íþrótta- og tómstundafulltrúi mættu á fundinn.
Lagt fram gjafaafsal þar sem Reykjanesbær afsalar Golfklúbbi Suðurnesja eftirfarandi fasteignum: Golfskálanum við Hólmsvöll í Leiru (F2096000), aðstöðuhúsi (F2236660) og vélageymslu (F2236659) ásamt öllu því sem mannvirkjunum fylgir, án lóðarréttinda.
Bæjarráð samþykkir gjafaafsalið 5-0 og felur bæjarlögmanni að vinna áfram í málinu og Kjartani Má Kjartanssyni bæjarstjóra að undirrita gjafaafsalið fyrir hönd Reykjanesbæjar.
2. Húsnæðisáætlun Reykjanesbæjar 2026 (2025100081)
Gunnar Kr. Þ. Ottósson skipulagsfulltrúi og Pálmar Guðmundsson framkvæmdastjóri Fasteigna Reykjanesbæjar mættu á fundinn.
Lögð fram drög að Húsnæðisáætlun Reykjanesbæjar 2026.
3. ADHD samtökin - beiðni um samstarf og stuðning (2025110489)
Lagt fram erindi um fjárhagslegan stuðning og samstarf.
Bæjarráð þakkar fyrir erindið en getur því miður ekki orðið við beiðni um fjárhagslegan stuðning að þessu sinni. Bæjarráð leggur til að stjórnendur á mennta- og velferðarsviði Reykjanesbæjar kanni möguleika á samstarfi við ADHD samtökin.
4. Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 14. nóvember 2025 (2025020043)
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
5. Fundargerð stjórnar Brunavarna Suðurnesja 20. nóvember 2025 (2025020453)
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Brunavarna Suðurnesja.
6. Ráðning sviðsstjóra menningar- og þjónustusviðs (2025080466)
Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir (B), Sverrir Bergmann Magnússon (S), Guðbergur Reynisson (D) og Helga María Finnbjörnsdóttir (Y) véku af fundi undir þessu máli. Inn á fundinn kom Díana Hilmarsdóttir (B).
Geirlaug Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri Hagvangs og Iðunn Kristín Grétarsdóttir mannauðsstjóri mættu á fundinn.
Þrír umsækjendur sem eftir stóðu að loknum viðtölum kynntu verkefni sem lögð voru fyrir þá.
Umsækjendum eru þakkaðar kynningarnar. Geirlaugu Jóhannsdóttur framkvæmdastjóra Hagvangs og Iðunni Kristínu Grétarsdóttur mannauðsstjóra er falið að setja fram heildarmat á umsækjendum út frá öllum þáttum umsóknarferilsins og leggja fram á næsta fundi bæjarráðs.
7. Aðalfundur Reykjanes Geopark 8. desember 2025 (2025120060)
Lagt fram aðalfundarboð Reykjanes Geopark.
Bæjarráð felur Halldóru Fríðu Þorvaldsdóttur formanni bæjarráðs að fara með atkvæði Reykjanesbæjar á fundinum.
Nothing else was done and the meeting was adjourned at 11:16.