Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

1548. fundur bæjarráðs Reykjanesbæjar

Fundurinn var haldinn þann 22. January 2026 kl. 08.15.

Fundarstaður: Grænásbraut 910 - Seltjörn

Viðstaddir: Bjarni Páll Tryggvason- aðalmaður, Guðný Birna Guðmundsdóttir aðalmaður, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir formaður nefndar, Margrét Ólöf A Sanders- aðalmaður, Margrét Þórarinsdóttir aðalmaður

Að auki sátu fundinn Helga María Finnbjörnsdóttir áheyrnarfulltrúi og Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir ritari.

Agenda

1. Uppbygging við Víkingaheima - ósk um samstarf (2025050343)

Lögð fram bókun umhverfis- og skipulagsráðs frá 21. nóvember 2025.

Margrét Þórarinsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun:

„Umbót gerir alvarlegan fyrirvara við þá málsmeðferð sem nú er viðhöfð í máli uppbyggingar við Víkingaheima.

Í upphafi málsins lá fyrir neikvætt faglegt mat sem var samþykkt samhljóða af umhverfis- og skipulagsráði. Þrátt fyrir það er málið nú fært inn í bæjarráð enn og aftur, án þess að nokkuð hafi breyst efnislega í forsendum þess.

Umbót telur þetta mjög varhugaverða leið, þar sem verið er að fara bakdyramegin fram hjá faglegri afgreiðslu skipulagssviðs, í stað þess að vinna málið áfram þar, eins og eðlilegt hefði verið.

Fyrirliggjandi beiðni frá Funabergi fasteignafélagi ehf. felur í sér:

•breytingu á aðalskipulagi Reykjanesbæjar,

•breytingu á deiliskipulagi,

•og röskun á grænu svæði,

allt til að mæta óskum eins aðila.

Umbót varar sérstaklega við þeirri þróun að aðalskipulagi og deiliskipulagi sé breytt í hvert sinn sem óskað er eftir frávikum frá þróunarsvæðum, þar sem slíkt grefur undan skipulagslegri heildarsýn, jafnræði og fyrirsjáanleika.

Jafnframt bendir Umbót á að kostnaður við breytingar á skipulagi fellur á sveitarfélagið. Engar upplýsingar liggja fyrir um hver sá kostnaður er, né hver muni bera hann. Þetta eru ákvarðanir sem hafa bein fjárhagsleg áhrif á Reykjanesbæ og íbúa hans.

Aðrir verktakar í sveitarfélaginu, sem greiða útsvar og starfa eftir gildandi skipulagi, fá enga aðkomu að þessu ferli, þrátt fyrir að hér sé verið að skapa nýtt byggingarsvæði fyrir einn aðila.

Umbót telur að þetta mál hefði aldrei átt að koma til afgreiðslu bæjarráðs, heldur átt að vera unnið áfram innan skipulagssviðs í samræmi við faglegt mat þess þar sem beiðni Funabergs var hafnað. 

Af framangreindum ástæðum getur Umbót ekki stutt málið í núverandi mynd.“

Bæjarráð tekur undir bókun umhverfis- og skipulagsráðs um að ákvörðun um mögulega breytingu á notkun svæðisins verði tekin upp að nýju samhliða endurskoðun aðalskipulags sem ráðgert er að hefjist síðar á þessu ári.

Samþykkt 4-0. Margrét Þórarinsdóttir sat hjá.

2. UMFN - umsókn um tækifærisleyfi (2026010361)

Erindi Sýslumannsins á Suðurnesjum vegna umsóknar um tækifærisleyfi. 

Bæjarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti.

3. Fundargerð aðalfundar Reykjanes jarðvangs ses. 8. desember 2025 (2025120060)

Fundargerð aðalfundar Reykjanes jarðvangs ses. lögð fram til kynningar.

5. Fundargerð stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum 14. janúar 2026 (2026010317)

Fundargerð stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum lögð fram til kynningar.

Nothing else was done and the meeting was adjourned at 09:09.