Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

1552. fundur bæjarráðs Reykjanesbæjar

Fundurinn var haldinn þann 19. February 2026 kl. 08.15.

Fundarstaður: Grænásbraut 910 - Seltjörn

Viðstaddir: Guðbergur Ingólfur Reynisson varamaður, Guðný Birna Guðmundsdóttir aðalmaður, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir formaður nefndar, Margrét Þórarinsdóttir aðalmaður, Róbert Jóhann Guðmundsson varamaður

Díana Hilmarsdóttir boðaði forföll, Róbert Jóhann Guðmundsson sat fyrir hana.

Margrét A. Sanders boðaði forföll, Guðbergur Reynisson sat fyrir hana.

Helga María Finnbjörnsdóttir boðaði forföll, Birgir Már Bragason sat fyrir hana.

Agenda

1. Helguvík Investment (2026020390)

Unnar Steinn Bjarndal bæjarlögmaður mætti á fundinn.

Lagt fram kauptilboð Reykjanesbæjar að lóðinni Stakksbraut 9.

Bæjarráð samþykkir framkomið kauptilboð og felur Unnari Steini Bjarndal bæjarlögmanni að vinna áfram í málinu í samræmi við umræður á fundinum. Formanni bæjarráðs falið að undirrita kauptilboðið.

2. Gamla búð (2025020331)

Hreinn Ágúst Kristinsson deildarstjóri eignaumsýslu mætti á fundinn.

Kynnt gögn aðila vegna reksturs í Gömlu búð og lögð fram drög að leigusamningi.

Bæjarráð felur Hreini Á. Kristinssyni að vinna áfram í málinu.

3. Óbyggðar atvinnulóðir - svar við fyrirspurn (2026020140)

Guðlaugur H. Sigurjónsson sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs kom inn á fundinn gegnum fjarfundabúnað.

Lögð fram gögn vegna fyrirspurnar um óbyggðar atvinnulóðir hjá sveitarfélaginu. Fyrirspurninni verður svarað formlega á fundi bæjarstjórnar 3. mars 2026.

4. Akademíureitur (2025010481)

Erla Bjarný Gunnarsdóttir lögfræðingur umhverfis- og framkvæmdasviðs og Gunnar Kristinn Ottósson skipulagsfulltrúi mættu á fundinn.

Lagt fram minnisblað um næstu skref vegna Akademíureitsins. Óskað er eftir heimild til ráðningar aðila til að sinna útboðsvinnu í samvinnu við starfsfólk Reykjanesbæjar. Einnig er óskað eftir heimild til að halda áfram vinnu með Alta vegna deiliskipulagsvinnu og útboðslýsingar fyrir reitinn.

Að auki er óskað eftir tilnefningu í hóp sem mun sjá um samskipti og samningagerð við fjárfesta á þeim reitum sem við á.

Bæjarráð leggur til að starfshópur um Akademíureitinn fundi um þær tillögur sem lagðar voru fram í samræmi við umræður á fundinum. Málið verður tekið aftur fyrir á fundi bæjarráðs.

5. Þórukot ehf. - þróunar- og samstarfssamningur (2025090372)

Erla Bjarný Gunnarsdóttir lögfræðingur umhverfis- og framkvæmdasviðs mætti á fundinn.

Lögð fram drög að samstarfssamningi milli Þórukots ehf. og Reykjanesbæjar um þróun og uppbyggingu verslunar- og þjónustukjarna í Reykjanesbæ.

Bæjarráð samþykkir samstarfssamninginn og felur Kjartani Má Kjartanssyni bæjarstjóra að undirrita hann.

Bæjarráð felur Erlu Bjarnýju Gunnarsdóttur lögfræðingi umhverfis- og framkvæmdasviðs að vinna áfram í skilmálum varðandi lóðamál.

6. Discover Truenorth ehf. - umsókn um tækifærisleyfi (2026020387)

Erindi Sýslumannsins á Suðurnesjum vegna umsóknar um tækifærisleyfi. Bæjarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti.

7. Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga - auglýsing eftir framboðum (2026020298)

Lagt fram bréf frá Lánasjóði sveitarfélaga þar sem vakin er athygli á að frestur til að skila inn framboði í stjórn Lánasjóðsins er til kl. 12:00 föstudaginn 27. febrúar nk.

8. Fundargerð stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga 17. október 2025 (2025010435)

Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.

9. Fundargerð stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga 9. janúar 2026 (2026020369)

Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.

10. Fundargerð Almannavarnanefndar Suðurnesja utan Grindavíkur 5. febrúar 2026 (2026020271)

Lögð fram til kynningar fundargerð Almannavarnarnefndar Suðurnesja utan Grindavíkur.

11. Fundargerð stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum 11. febrúar 2026 (2026010317)

Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum.

Nothing else was done and the meeting was adjourned at 10:42.