Agenda
1. Listamaður Reykjanesbæjar - reglur (2026020506)
Guðlaug María Lewis menningarfulltrúi mætti á fundinn.
Lagðar fram uppfærðar reglur um nafnbótina Listamaður Reykjanesbæjar.
Bæjarráð samþykkir 5-0 uppfærðar reglur í samræmi við umræður á fundinum.
2. Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga 20. mars 2026 - fundarboð (2026020298)
Lagt fram aðalfundarboð Lánasjóðs sveitarfélaga.
Bæjarráð felur Kjartani Má Kjartanssyni bæjarstjóra að fara með atkvæði sveitarfélagsins á fundinum.
3. Fundargerð stjórnar Brunavarna Suðurnesja 19. febrúar 2026 (2026010077)
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Brunavarna Suðurnesja.
4. Fundargerð stjórnar Reykjanes jarðvangs 23. febrúar 2026 (2026010487)
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Reykjanes jarðvangs.
5. Fundargerð svæðisskipulagsnefndar Suðurnesja 26. febrúar 2026 (2026030004)
Lögð fram til kynningar fundargerð svæðisskipulagsnefndar Suðurnesja.
6. Fjárreiður Reykjanesbæjar (2025040024)
Regína Fanný Guðmundsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs mætti á fundinn og fór yfir fjárstreymi og stöðu fjárfestinga sveitarfélagsins.
7. Samstarf um hringrásariðngarð – erindisbréf (2023100396)
Tekið fyrir erindisbréf um skipun í faghóp sem hefur það hlutverk að vera ráðgefandi um lóðaúthlutanir í takt við markmið hringrásariðngarðs.
Bæjarráð vísar málinu til frekari umræðu í umhverfis- og skipulagsráði og atvinnu- og hafnarráði.
Nothing else was done and the meeting was adjourned at 09:10.