Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

1555. fundur bæjarráðs Reykjanesbæjar

Fundurinn var haldinn þann 12. March 2026 kl. 08.15.

Fundarstaður: Grænásbraut 910 - Seltjörn

Viðstaddir: Díana Hilmarsdóttir aðalmaður, Guðný Birna Guðmundsdóttir aðalmaður, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir formaður nefndar, Margrét Ólöf A Sanders- aðalmaður, Margrét Þórarinsdóttir aðalmaður

Að auki sátu fundinn Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri, Helga María Finnbjörnsdóttir áheyrnarfulltrúi og Hrefna Gunnarsdóttir ritari.

Agenda

1. Stjórn bílastæðasjóðs (2022100414)

Erla Bjarný Gunnarsdóttir lögfræðingur umhverfis- og framkvæmdasviðs mætti á fundinn.

Lagt fram minnisblað frá 1351. fundi bæjarráðs ásamt Samþykkt um Bílastæðasjóð Reykjanesbæjar sem samþykkt var á bæjarstjórnarfundi 7. maí 2024.

Óskað er eftir heimild bæjarráðs að halda áfram með verkefnið í samræmi við forsendur sem koma fram í minnisblaðinu.

Bæjarráð samþykkir að fela Erlu Bjarnýju Gunnarsdóttur að halda áfram með verkefnið í samræmi við forsendur í minnisblaðinu og að vísa erindinu til fjárhagaáætlunar 2027.

2. Faxabraut 13, Hlévangur - verðmat (2025040182)

Lagt fram til kynningar verðmat vegna Faxabrautar 13 í Reykjanesbæ.

3. Brynja leigufélag - stofnframlag (2026030165)

Lagt fram erindi Brynju leigufélags ses. vegna umsóknar félagsins til HMS um stofnframlög vegna kaupa á íbúðum í Reykjanesbæ á árinu 2026. Hlutur stofnframlags Reykjanesbæjar er 12% eða kr. 41.500.000.

Bæjarráð vísar erindinu til fjárhagsáætlunar 2027.

4. Umsókn um styrk - Sterkari út í lífið (2026030149)

Lögð fram beiðni um styrk.

Bæjarráð þakkar fyrir erindið en getur því miður ekki orðið við því að þessu sinni.

5. Aðalfundur HS Veitna hf. 25. mars 2026 (2026030174)

Lagt fram aðalfundarboð HS Veitna hf.

Bæjarráð felur Guðnýju Birnu Guðmundsdóttur forseta bæjarstjórnar að fara með atkvæði sveitarfélagsins á fundinum.

6. Fab Lab Suðurnes - ársskýrsla (2026030139)

Lögð fram ársskýrsla Fab-Lab Suðurnes.

7. Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 3. mars 2026 (2026010670)

Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Nothing else was done and the meeting was adjourned at 09:40.