Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

1556. fundur bæjarráðs Reykjanesbæjar

Fundurinn var haldinn þann 19. March 2026 kl. 08.15.

Fundarstaður: Grænásbraut 910 - Seltjörn

Viðstaddir: Díana Hilmarsdóttir aðalmaður, Guðný Birna Guðmundsdóttir aðalmaður, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir formaður nefndar, Margrét Ólöf A Sanders- aðalmaður, Margrét Þórarinsdóttir aðalmaður

Að auki sátu fundinn Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri, Helga María Finnbjörnsdóttir áheyrnarfulltrúi og Hrefna Gunnarsdóttir ritari.

Agenda

1. Njarðarvellir 2 - Sala á húsnæði (2025040506)

Unnar Steinn Bjarndal bæjarlögmaður mætti á fundinn.

Lagt fram söluyfirlit fasteignarinnar Njarðarvellir 2.

Bæjarráð samþykkir 3-0 að hefja ferli við sölu á Njarðarvöllum 2 og felur Unnari Steini Bjarndal bæjarlögmanni að vinna áfram í málinu. Margrét A. Sanders og Margrét Þórarinsdóttir Sjálfstæðisflokki sitja hjá.

Bókun Margrétar A. Sanders og Margrétar Þórarinsdóttur:

„Sjálfstæðisflokkurinn er hlynntur því að seldur verður eldri hluti hjúkrunarheimilis Nesvalla. Sjálfstæðisflokkurinn telur skynsamlegt að áður en húsnæðið er sett á sölu verði gert verðmat á húsnæðinu með tilliti til þess leigusamnings sem nú er í gildi, ástands hússins, lán sem hvíla á húsinu og eignaskiptayfirlýsingar áður en húsnæðið er sett á sölu þannig að hægt sé að setja sér raunhæft markmið með það verð sem eðlilegt er að Reykjanesbær sætti sig við. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja því hjá.“

Margrét Sanders, Margrét Þórarinsdóttir Sjálfstæðisflokki

2. Sértæk búsetuúrræði fyrir fólk með fötlun (2026020053)

Hera Ósk Einarsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs og Ólafur Garðar Rósinkarsson verkefnastjóri í málefnum fatlaðra mættu á fundinn.

Lagt fram minnisblað sem tekið var fyrir á fundi velferðarráðs Reykjanesbæjar 12. mars sl.

Bæjarráð felur Heru Ósk Einarsdóttur sviðsstjóra velferðarsviðs og Ólafi Garðari Rósinkarssyni verkefnastjóra í málefnum fatlaðra að vinna þarfagreiningu, kostnaðaráætlun og framtíðarsýn og leggja fyrir á næsta fundi velferðarráðs líkt og verklagsregla VRL-0044 segir til um.

3. Skammtímavistun fatlaðra barna (2026030166)

Hera Ósk Einarsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs mætti á fundinn.

Lagt fram minnisblað vegna skammtímavistunar fatlaðra barna.

Bæjarráð felur Heru Ósk Einarsdóttur sviðsstjóra velferðarsviðs og Ólafi Garðari Rósinkarssyni verkefnastjóra í málefnum fatlaðra að vinna aðgerðaáætlun og leggja fyrir fund bæjarráðs 22. apríl nk.

4. Sameining dagdvala (2024050055)

Hera Ósk Einarsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs, Margrét Arnbjörg Valsdóttir teymisstjóri öldrunar- og stuðningsþjónustu og Hreinn Ágúst Kristinsson deildarstjóri eignaumsýslu mættu á fundinn.

Lagt fram minnisblað vegna sameiningar dagdvala hjá Reykjanesbæ og endurskoðunar leigusamnings. Lagðar fram þrjár tillögur um fjármögnun á kostnaði við innanhússbreytingar sem þarf að fara í vegna sameiningar dagdvalanna.

Bæjarráð samþykkir að leið A og B í sameiningu dagdvala verði rýndar. Deildarstjóra eignaumsýslu Hreini Á. Kristinssyni falið að vinna málið áfram í samvinnu við fjármálastjóra Reykjanesbæjar. Málið verður tekið aftur á dagskrá bæjarráðs.

5. Uppgjör skulda Fasteigna Reykjanesbæjar ehf. og Almennra íbúða hses. við Reykjanesbæ (2025040088)

Regína F. Guðmundsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og Pálmar Guðmundsson framkvæmdastjóri Fasteigna Reykjanesbæjar mættu á fundinn.

Lagt fram minnisblað vegna uppgjörs á skuldum Fasteigna Reykjanesbæjar ehf. og Almennra íbúða hses. við Reykjanesbæ.

Bæjarráð samþykkir að ganga að uppgjörinu og felur Regínu F. Guðmundsdóttur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að ganga frá málinu.

6. Kristján Pétur Ásmundsson (Fjölbrautaskóli Suðurnesja) - umsókn um tækifærisleyfi (2026030270)

Erindi Sýslumannsins á Suðurnesjum vegna umsóknar um tækifærisleyfi. Bæjarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti.

7. Ársfundur Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja 27. mars 2026 (2026030263)

Lögð fram tilkynning frá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja um ársfund HSS.

8. Fundargerð svæðisskipulagsnefndar Suðurnesja 12. mars 2026 (2026030004)

Lögð fram til kynningar fundargerð svæðisskipulagsnefndar Suðurnesja.

9. Fundargerð stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum 11. mars 2026 (2026010317)

Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum.

10. Fundargerð stjórnar Þekkingarseturs Suðurnesja 19. febrúar 2026 (2026030285)

Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Þekkingarseturs Suðurnesja.

11. Umsagnarmál frá nefndasviði Alþingis (2026010648)

Nothing else was done and the meeting was adjourned at 10:15.