Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

1557. fundur bæjarráðs Reykjanesbæjar

Fundurinn var haldinn þann 26. March 2026 kl. 08.15.

Fundarstaður: Grænásbraut 910 - Seltjörn

Viðstaddir: Díana Hilmarsdóttir aðalmaður, Guðný Birna Guðmundsdóttir aðalmaður, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir formaður nefndar, Margrét Ólöf A Sanders- aðalmaður, Margrét Þórarinsdóttir aðalmaður

Að auki sátu fundinn Birgir Már Bragason áheyrnarfulltrúi og Hrefna Gunnarsdóttir ritari.

Helga María Finnbjörnsdóttir boðaði forföll, Birgir Már Bragason sat fyrir hana.

Bæjarráð samþykkir 5-0 að taka á dagskrá Inga Hrönn Kristjánsdóttir - umsókn um tækifærisleyfi (2026030464). Fjallað er um málið undirdagskrárlið 6.

Vegna tilmæla frá Almannavörnum um að vera ekki á ferðinni að ónauðsynjalausu vegna óveðurs var fundurinn haldinn á Teams.

Agenda

1. Umferðaröryggi 2026-2030 (2026020367)

Margrét Lilja Margeirsdóttir deildarstjóri umhverfismála mætti á fundinn.

Lögð fram aðgerðaáætlun umferðaöryggis þar sem greint er og forgangsraðað útbótum á lýsingu við umferðamannvirki í Reykjanesbæ.

Bæjarráð samþykkir að fela Margréti Lilju Margeirsdóttur deildarstjóra umhverfismála að hefja framkvæmd aðgerðaráætlunar vegna árs 1 (2026) og einnig að framkvæmd aðgerðaráætlunar ár 2 (2027) verði flýtt og framkvæmd á árinu 2026 þar sem áætluðum framkvæmdakostnaði að fjárhæð  8.049.484,- verði mætt með gatnagerðargjöldum sem tekjufærð eru á deild 10300 Viðhald og rekstur gatnakerfis.

2. Landsbyggðastrætó - breytingar á leiðakerfi (2025090386)

Margrét Lilja Margeirsdóttir deildarstjóri umhverfismála mætti á fundinn og fór yfir stöðuna.

Bæjarráð felur Guðlaugi H. Sigurjónssyni sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs og Margréti Lilju Margeirsdóttur deildarstjóra umhverfismála að fara í frekari viðræður við Vegagerðina varðandi framhald á leið 55.

3. Fundargerðir stjórnar Reykjanes jarðvangs 19. janúar og 16. mars 2026 (2026010487)

Lagðar fram til kynningar fundargerðir stjórnar Reykjanes jarðvangs.

4. Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 10. mars 2026 (2026010670)

Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.

6. Inga Hrönn Kristjánsdóttir - umsókn um tækifærisleyfi (2026030464)

Erindi Sýslumannsins á Suðurnesjum vegna umsóknar um tækifærisleyfi. Bæjarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti.

Nothing else was done and the meeting was adjourned at 09:20.