Agenda
1. Frumkvæðisathugun á málavinnslu barnaverndarþjónustu Reykjanesbæjar við vistun barna utan heimilis (2026030114)
Lögð var fram skýrsla Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála, unnin á grundvelli laga nr. 88/2021 um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála og laga nr. 80/2002 um barnavernd. Kjörnir oddvitar funduðu með Heru Ósk Einarsdóttur sviðsstjóra velferðarsviðs, mánudaginn 30. mars 2026, þar sem efni skýrslunnar var kynnt og farið yfir niðurstöður hennar.
Þegar hefur verið skipað úrbótateymi og vinna hafin við gerð úrbótaáætlunar sem bæjarráð leggur mikla áherslu á að verði unnin með markvissum hætti. Úrbótaáætlun skal lögð fyrir Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála eigi síðar en 29. apríl 2026. Stefnt er að því að innleiðingu úrbóta verði lokið fyrir árslok 2026. Bæjarráð og velferðarráð skulu upplýst reglubundið um framvindu málsins, í samræmi við góða stjórnsýsluhætti.
2. Reykjanesbær (Fjörheimar) - umsókn um tækifærisleyfi (2026030459)
Erindi Sýslumannsins á Suðurnesjum vegna umsóknar um tækifærisleyfi. Bæjarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti.
3. Lilja Karen Steinþórsdóttir (Hótel Keflavík) - umsókn um tækifærisleyfi (2026030287)
Lagt fram erindi Sýslumannsins á Suðurnesjum vegna umsóknar um tækifærisleyfi.
Bæjarráð óskar eftir frekari upplýsingum er varðar vígslu Vatnsnesshússins áður en lengra er haldið þar sem Reykjanesbær er meirihluti eigandi hússins. Bæjarráð felur Halldóru Guðrúnu Jónsdóttur sviðsstjóra menningar- og þjónustusviðs að vinna áfram í málinu.
4. Stefna um opinbera þjónustu (2026030498)
Lögð fram Stefna um opinbera þjónustu frá stjórnarráði Íslands.
5. Ársskýrsla Brunavarna Suðurnesja 2025 (2026030502)
Lögð fram til kynningar ársskýrsla Brunavarna Suðurnesja 2025.
6. Erindisbréf Brunavarna Suðurnesja (2026030540)
Erindisbréf stjórnar Brunavarnar Suðurnesja bs. lagt fram til kynningar.
7. Fundargerð stjórnar eignasjóðs Reykjanesbæjar 26. mars 2026 (2026010015)
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Eignasjóðs Reykjanesbæjar.
Tekið til sérstakrar samþykktar:
Annað mál fundargerðarinnar - Myllubakkaskóli – stækkun á íþróttamannvirki (2021050174). Bæjarráð samþykkir 5-0 framlagða tillögu um stækkun sem felur ekki í sér kostnaðaraukningu við heildarverkefnið.
Fimmta mál fundargerðarinnar - Klapparstígur 7 (2026030442). Bæjarráð samþykkir 5-0 að framlengja afnotasamningi af Klapparstíg 7 til eins árs með lokadagsetningu þann 31. október 2027. Auk þess felur bæjarráð deildarstjóra eignaumsýslu að kostnaðarmeta þær framkvæmdir sem óskað er eftir að ráðast í.
8. Fundargerðir neyðarstjórnar 25. og 26. mars 2026 (2026030486)
Lagðar fram til kynningar fundargerðir neyðarstjórnar Reykjanesbæjar.
9. Fundargerð stjórnar Brunavarna Suðurnesja 19. mars 2026 (2026010077)
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Brunavarna Suðurnesja.
10. Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 20. mars 2026 (2026010670)
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
11. Fundargerð stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga 28. janúar 2026 (2026020369)
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.
12. Fundargerð heilbrigðisnefndar Suðurnesja 25. mars 2026 (2026020138)
Lögð fram til kynningar fundargerð heilbrigðisnefndar Suðurnesja.
13. Umsagnarmál frá nefndasviði Alþingis (2026010648)
Frumvarp til laga um Stofnun atvinnuveganna, 568. mál
Umsagnarmál lögð fram.
Nothing else was done and the meeting was adjourned at 09:58.