Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

1559. fundur bæjarráðs Reykjanesbæjar

Fundurinn var haldinn þann 9. April 2026 kl. 08.15.

Fundarstaður: Grænásbraut 910 - Seltjörn

Viðstaddir: Díana Hilmarsdóttir aðalmaður, Guðný Birna Guðmundsdóttir aðalmaður, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir formaður nefndar, Margrét Ólöf A Sanders- aðalmaður, Margrét Þórarinsdóttir aðalmaður

Að auki sat fundinn Helga María Finnbjörnsdóttir áheyrnarfulltrúi og Hrefna Gunnarsdóttir ritari.

Agenda

1. Umsögn vegna rekstrarleyfis – GREEN SALAD STORY ehf., Aðalgata 10 (2026010260)

Erindi Sýslumannsins á Suðurnesjum vegna umsóknar um reksturs gististaðar í flokki II-B. Lagðar fram umsagnir byggingarfulltrúa Reykjanesbæjar, Brunavarna Suðurnesja og Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja. Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti með vísan til fyrirliggjandi umsagna.

2. Fimleikadeild Keflavíkur - lendingardýna (2026040066)

Lagt fram erindi frá fimleikadeild Keflavíkur um styrk til lagfæringar á lendingardýnu, áætlaður kostnaður er kr. 5 milljónir.

Bæjarráð samþykkir beiðnina. Kostnaður fer á lykil 06-020-9220 kr.2.000.000 og lykil 21-010-9220 kr. 3.000.000.

3. Ráðstefna um málefni norðurslóða 13. maí 2026 (2026030483)

Upplýsingar um ráðstefnu Félagsvísindadeildar Háskólans á Bifröst.

4. Ársfundur Brunavarna Suðurnesja 30. apríl 2026 (2026030523)

Lagt fram aðalfundarboð Brunavarna Suðurnesja. Bæjarráð felur Kjartani Má Kjartanssyni bæjarstjóra að fara með atkvæði Reykjanesbæjar á fundinum.

5. Tilkynningarskylda skógarræktar - ályktun fulltrúafundar Skógræktarfélags Íslands (2026040037)

Lögð fram ályktun fulltrúafundar Skógræktarfélags Íslands.

6. Fjárreiður Reykjanesbæjar (2025040024)

Regína Fanný Guðmundsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs mætti á fundinn og fór yfir fjárstreymi og stöðu fjárfestinga sveitarfélagsins.

Nothing else was done and the meeting was adjourned at 09:05.