Agenda
1. Ársreikningur Reykjanesbæjar 2025 (2026040150)
Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri sat fundinn undir þessu máli í gengum fjarfundabúnað.
Regína Fanný Guðmundsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og Þorgeir Sæmundsson deildarstjóri reikningshalds mættu á fundinn.
Lögð fram drög að ársreikningi Reykjanesbæjar 2025.
Bæjarráð vísar ársreikningi í endurskoðun og til fyrri umræðu í bæjarstjórn 21. apríl 2026.
2. Svítur við Myllubakkaskóla (2026030446)
Helgi Arnarson sviðsstjóri menntasviðs og Hreinn Ágúst Kristinsson deildarstjóri eignaumsýslu mættu á fundinn.
Lagðar fram þarfagreiningar og rökstuðningur um áframhaldandi notkun á svítum sem verið hafa í notkun við Myllubakkaskóla.
Bæjarráð samþykkir framlagðar tillögur og felur deildarstjóra eignaumsýslu að vinna málið áfram.
3. Listamaður Reykjanesbæjar (2026020506)
Guðlaug María Lewis menningarfulltrúi mætti á fundinn.
Lagðar fram umsagnir menningar- og þjónusturáðs vegna vals á listamanni Reykjanesbæjar 2026-2030.
Bæjarráð hefur samþykkt 5-0 val á listamanni Reykjanesbæjar 2026-2030 og verður valið tilkynnt við hátíðardagskrá 17. júní nk.
4. Tómstundamiðstöð - kynning (2026030173)
Lögð fram kynning vinnuskóla Reykjanesbæjar.
Bæjarráð samþykkir að ráða 10 ungmenni á aldrinum 16-18 ára til Vinnuskólans og 10 ungmenni á aldrinum 16-18 ára til garðyrkjudeildar í sumar í hámark 6 vikur. Hámarkslaunakostnaður á hvora deild er 6.500.000,- með launatengdum gjöldum og er ábyrgðarmönnum deildanna gert að reyna að rúma fjárhæðir innan fjárheimilda 2026. Í lok sumars þurfa ábyrgðarmenn að skila uppgjöri á sumrinu til bæjarráðs.
5. Krakkakosningar 2026 - lýðræðisleg þátttaka barna (2026040117)
Lagt fram erindi frá umboðsmanni barna þar sem hvatt er til að sveitastjórnir og ungmennaráð standi fyrir krakkakosningum í samstarfi við nemendaráð og grunnskóla sveitarfélagsins.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og felur Kjartani Má Kjartanssyni bæjarstjóra að skoða möguleika á framkvæmd verkefnisins.
6. Lilja Karen Steinþórsdóttir (Hótel Keflavík) - umsókn um tækifærisleyfi (2026030287)
Halldóra Guðrún Jónsdóttir sviðsstjóri menningar- og þjónustusviðs mætti á fundinn.
Erindi Sýslumannsins á Suðurnesjum vegna umsóknar um tækifærisleyfi. Bæjarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti.
7. Fjölbrautaskóli Suðurnesja - umsókn um tækifærisleyfi (2026040098)
Erindi Sýslumannsins á Suðurnesjum vegna umsóknar um tækifærisleyfi. Bæjarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti.
8. Jóna Helena Bjarnadóttir (Sundráð ÍRB) - umsókn um tækifærisleyfi (2026040126)
Erindi Sýslumannsins á Suðurnesjum vegna umsóknar um tækifærisleyfi. Bæjarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti.
9. Aukaaðalfundur Samtaka orkusveitarfélaga 29. apríl 2026 (2026040152)
Lagt fram aukaaðalfundarboð Samtaka orkusveitarfélaga.
10. Körfuknattleiksdeild Keflavíkur - umsókn um tækifærisleyfi (2026040164)
Erindi Sýslumannsins á Suðurnesjum vegna umsóknar um tækifærisleyfi. Bæjarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti.
Nothing else was done and the meeting was adjourned at 09:52.