Agenda
1. Ársreikningur Reykjanesbæjar 2025 (2026040150)
Ágúst Kristinsson endurskoðandi frá PwC, Þorgeir Sæmundsson deildarstjóri reikningshalds og Regína Fanný Guðmundsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs mættu á fundinn.
Kynnt voru drög að endurskoðunarskýrslu vegna endurskoðunar ársreiknings Reykjanesbæjar fyrir árið 2025.
2. Stapabraut 15 - tilboð (2026030317)
Gunnar Kr. Ottósson skipulagsfulltrúi mætti á fundinn.
Lögð fram tilboð sem bárust í byggingarrétt á Stapabraut 15.
Bæjarráð samþykkir að Erla B. Gunnarsdóttir lögfræðingur umhverfis- og framkvæmdasviðs og Gunnar Kr. Ottósson skipulagsfulltrúi gangi til samninga við Reiti og geri drög að þróunarsamningi sem lagður verður fyrir bæjarráð.
3. Umsögn vegna breytingar á rekstrarleyfi - GusKat ehf., Framnesvegur 23 (2026030441)
Erindi Sýslumannsins á Suðurnesjum vegna umsóknar um leyfi til að reka veitingastað í flokki II - E. Lagðar fram umsagnir byggingarfulltrúa Reykjanesbæjar, Brunavarna Suðurnesja og Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja. Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti með vísan til fyrirliggjandi umsagna.
4. Aðalfundur Eignarhaldsfélags Suðurnesja 5. maí 2026 (2026040286)
Lagt fram aðalfundarboð Eignarhaldsfélags Suðurnesja.
Bæjarráð felur Kjartani Má Kjartanssyni bæjarstjóra að fara með atkvæði Reykjanesbæjar.
5. Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 17. apríl 2026 (2026010670)
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
6. Umsagnarmál frá nefndasviði Alþingis (2026010648)
Umsagnarmál lagt fram.
7. Fundargerð stjórnar eignasjóðs Reykjanesbæjar 16. apríl 2026 (2026010015)
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Eignasjóðs Reykjanesbæjar.
Nothing else was done and the meeting was adjourned at 09:41.