Agenda
1. Skammtímavistun fatlaðra barna (2026030166)
Hera Ósk Einarsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs mætti á fundinn.
Lagðar fram tillögur sem miða að því að auka þjónustu skammtímavistunar fatlaðra barna.
Bæjarráð samþykkir 25% viðbótarstöðugildi í Heiðarholti sem rúmast innan fjárheimilda 2026. Bæjarráð felur Kjartani Má Kjartanssyni bæjarstjóra að vinna áfram í öðrum tillögum sem fram koma í erindinu. Bæjarráð telur mikilvægt að ný bæjarstjórn vinni að framtíðarsýn sveitarfélagsins í málaflokknum.
2. Almenningssamgöngur í Reykjanesbæ (2019090564)
Erla Bjarný Gunnarsdóttir lögfræðingur umhverfis- og framkvæmdasviðs mætti á fundinn og fór yfir stöðu almenningssamganga í Reykjanesbæ.
Bæjarráð samþykkir að nýtt verði pöntunarþjónusta í akstur almenningssamgangna í fyrstu ferð kl.06:00 á morgnana á virkum dögum í stað núverandi aksturs sem hefur ekki verið mikið nýttur. Aksturinn rúmast innan fjárheimilda 2026.
3. Berghólabraut 9 (2026010587)
Erla Bjarný Gunnarsdóttir lögfræðingur umhverfis- og framkvæmdasviðs mætti á fundinn.
Lagt fram erindi frá B9 Byggingum ehf. varðandi makaskipti á iðnaðarlóð.
Bæjarráð felur Erlu Bjarnýju Gunnarsdóttur lögfræðingi umhverfis- og framkvæmdasviðs að vinna áfram í málinu í samræmi við umræður á fundinum.
4. Hólmbergsbraut 2 - stækkun lóðar (2026010574)
Erla Bjarný Gunnarsdóttir lögfræðingur umhverfis- og framkvæmdasviðs mætti á fundinn.
Lagt fram erindi frá Blue Eignum ehf. og Blue Car Rental ehf. vegna gatnagerðagjalds.
Bæjarráð felur Erlu Bjarnýju Gunnarsdóttur lögfræðingi umhverfis- og framkvæmdasviðs að vinna áfram í málinu í samræmi við umræður á fundinum.
5. Aðalfundur og hluthafafundur Keilis 12. maí 2026 (2026050032)
Lagt fram aðalfundarboð og hluthafafundarboð Keilis, miðstöðvar vísinda, fræða og atvinnulífs.
Bæjarráð felur Kjartani Má Kjartanssyni bæjarstjóra að fara með atkvæði Reykjanesbæjar á fundunum.
Bæjarráð tilnefnir Kjartan Má Kjartansson bæjarstjóra í stjórn Keilis.
6. Ársfundur Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum 21. maí 2026 (2026050039)
Lagt fram fundarboð um ársfund Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum.
7. Fundargerð stjórnar Reykjanes jarðvangs 20. apríl 2026 (2026010487)
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Reykjanes jarðvangs ses.
8. Lilja Karen Steinþórsdóttir (Hótel Keflavík) - umsókn um tækifærisleyfi (2026030287)
Erindi Sýslumannsins á Suðurnesjum vegna umsóknar um tækifærisleyfi. Bæjarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti.
Nothing else was done and the meeting was adjourned at 09:50.