Agenda
1. Stapabraut 15 - tilboð (2026030317)
Erla Bjarný Gunnarsdóttir lögfræðingur umhverfis- og framkvæmdasviðs mætti á fundinn.
Lögð fram drög að þróunarsamningi milli Reykjanesbæjar og Reita vegna Stapabrautar 15.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög með fyrirvara um breytingar á orðalagi í 7. grein sem fjallar um gildistíma og uppsögn í samræmi við umræðu á fundinum. Bæjarráð felur Erlu Bjarnýju Gunnarsdóttur að vinna áfram í málinu.
2. Frumkvæðisathugun á vinnslu barnaverndarmála (2026030114)
Henný Úlfarsdóttir teymisstjóri barnaverndar mætti á fundinn.
Lögð fram verk- og tímaáætlun úrbótaverkefna í barnaverndarmálum Reykjanesbæjar.
Bæjarráð þakkar fyrir kynningu á verk- og tímaáætluninni og leggur til að áætlunin verði til umfjöllunar mánaðarlega á meðan á vinnunni stendur, að árangur úrbóta sé mældur og regluleg eftirfylgni með framvindu verkefnisins sé kynnt.
3. Barnaverndarþjónusta - drög að samningi við Grindavíkurbæ (2025120125)
Henný Úlfarsdóttir teymisstjóri barnaverndar mætti á fundinn.
Lögð fram drög að samningi Reykjanesbæjar og Grindavíkurbæjar um barnaverndarþjónustu.
Bæjarráð felur Kjartani Má Kjartanssyni bæjarstjóra og Heru Ósk Einarsdóttur sviðsstjóra velferðarsviðs að vinna áfram í málinu í samræmi við umræður á fundinum.
4. Húsnæðismál leikskóla (2024040176)
Lögð fram til kynningar fyrir bæjarráð tillaga að nýju húsnæði leikskólans Garðasels og undirbúningi fyrir byggingu leikskólahluta Stapaskóla. Verkefnin verða unnin áfram í samræmi við gæðaferil um viðhaldsframkvæmd, nýbyggingu eða leiguhúsnæði VRL-0044.
5. Umsögn vegna breytingar á rekstrarleyfi - Fjárskyn ehf. (Dubliner), Hafnargata 30 (2026030444)
Erindi Sýslumannsins á Suðurnesjum vegna umsóknar um um breytingu á rekstrarleyfi, í flokk III-B. Lögð fram umsögn byggingarfulltrúa Reykjanesbæjar. Bæjarráð hafnar umsókninni með vísan til fyrirliggjandi umsagnar.
6. North Star Rentals ehf. - ökutækjaleiga/geymslustaður ökutækja Smáratúni 26 - beiðni um umsögn (2026050149)
Erindi Samgöngustofu vegna umsóknar um leyfi fyrir geymslustað ökutækja vegna ökutækjaleigu. Lögð fram umsögn byggingarfulltrúa Reykjanesbæjar. Bæjarráð hafnar umsókninni með vísan til fyrirliggjandi umsagnar.
7. Breytingar á Hviðu (Eignarhaldsfélagi Suðurnesja) (2026040286)
Guðný Birna Guðmundsdóttir fór yfir breytingar sem búið er að gera á starfsemi og stjórn Hviðu.
8. Fundargerð stjórnar Brunavarna Suðurnesja 30. apríl 2026 (2026010077)
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Brunavarna Suðurnesja.
9. Fundargerð heilbrigðisnefndar Suðurnesja 6. maí 2026 (2026020138)
Lögð fram til kynningar fundargerð heilbrigðisnefndar Suðurnesja.
Nothing else was done and the meeting was adjourned at 09:47.