Agenda
1. Almenningssamgöngur (2026100352)
Guðlaugur H. Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs og Regína Fanný Guðmundsdóttir, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, sitja fundinn undir þessum dagskrárlið. Margrét Lilja Margeirsdóttir deildarstjóri umhverfismála sat fundinn gegnum fjarfundarbúnað.
Lagt fram minnisblað um breytingar á gjaldskrá og akstursleiðum.
Bæjarráð vísar erindinu til fjárhagsáætlunargerðar 2027.
2. Fjárhagsáætlun og fjárreiður Reykjanesbæjar (2026070036)
Regína Fanný Guðmundsdóttir, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, situr fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram drög að fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar 2027.
Sameiginleg bókun bæjarráðs:
„Bæjarráð vill þakka fjármálastjóra, stjórnendum og starfsfólki Reykjanesbæjar fyrir afar umfangsmikla og metnaðarfulla vinnu við undirbúning fjárhagsáætlunar undanfarna mánuði.
Við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027 hefur verið tekið upp breytt vinnulag þar sem byggt er á aðferðafræði svokallaðrar núllgrunnsáætlunar. Sú nálgun felur í sér að verkefni og útgjöld sveitarfélagsins eru tekin til ítarlegrar skoðunar og þörf fyrir fjárveitingar rökstudd með markvissari hætti en áður. Ljóst er að þessar umbætur hafa kallað á mikla vinnu og aukið álag á starfsfólk bæjarins.
Bæjarráð vill sérstaklega þakka starfsfólki fyrir að hafa tekið þessari áskorun af fagmennsku og jákvæðni. Við erum sannfærð um að þessi vinna muni skila sér í markvissari forgangsröðun, aukinni ráðdeild og betri nýtingu fjármuna sveitarfélagsins. Markmiðið er sem fyrr að hver einasta króna úr vösum bæjarbúa nýtist sem allra best.
Fram undan er áframhaldandi vinna við gerð fjárhagsáætlunar og mikilvægar ákvarðanir um forgangsröðun og framtíð rekstarins. Bæjarráð er einhuga um mikilvægi þess að vinna að þessum verkefnum af ábyrgð og með hagsmuni bæjarbúa að leiðarljósi.
Þótt okkur kunni að greina á um einstakar áherslur og útfærslur sameinumst við um þau grundvallarmarkmið að tryggja traustan og sjálfbæran rekstur Reykjanesbæjar, veita bæjarbúum góða þjónustu og halda álögum á heimili og fyrirtæki í sveitarfélaginu í lágmarki.“
Gunnlaugur Kárason (M), Hjörtur M. Guðbjartsson (S), Kristján Pétur Kristjánsson (D), Margrét Þórarinsdóttir (D) og Róbert Jóhann Guðmundsson (B).
3. 30 stunda gjaldfrjáls leikskóladvöl - tillaga spretthóps leikskólaráðs (2026090393)
Helgi Arnarson sviðsstjóri menntasviðs og B. Sif Stefánsdóttir leikskólafulltrúi sitja fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram minnisblað frá spretthópi leikskólaráðs um 30 stunda gjaldfrjálsa leikskóladvöl í leikskólum Reykjanesbæjar.
Bæjarráð þakkar spretthópi um leikskólamál fyrir metnaðarfulla vinnu og góðar tillögur sem miða að því að bæta leikskólaþjónustu í Reykjanesbæ. Lagt er upp með að tillagan spretthópsins verði til reynslu í eitt ár.
Bæjarráð fagnar þeim víðtæka samhljómi sem ríkti í leikskólaráði um að taka undir helstu tillögur spretthópsins og telur mikilvægt að fylgja þeirri vinnu eftir. Bæjarráð leggur áherslu á að tekið verði mið af tillögunum við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027, með það að markmiði að skapa enn betra leikskólaumhverfi fyrir börn, foreldra og starfsfólk.
Bæjarráð samþykkir 5-0 að vísa tillögu spretthóps leikskólaráðs um nýtt fyrirkomulag sem tæki gildi á haustmánuðum 2027 til fjárhagsáætlunar 2027.
4. Viljayfirlýsing - lóðir í Helguvík (2026100360)
Lögð fram drög að viljayfirlýsingu milli Reykjanesbæjar og Verda Cloud OY.
Bæjarráð samþykkir 5-0 að heimila Vilhjálmi Árnasyni bæjarstjóra að undirrita viljayfirlýsinguna.
5. Norræna félagið á Suðurnesjum - beiðni um styrk (2026100302)
Bæjarráð getur ekki orðið við beiðninni að svo stöddu þar sem ekki er gert ráð fyrir þessu í fjárhagsáætlun.
6. Reykjanesbær (Fjörheimar) - umsókn um tækifærisleyfi (2026100348)
Erindi Sýslumannsins á Suðurnesjum vegna umsóknar um tækifærisleyfi. Bæjarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti.
7. Fundargerð stjórnar Brunavarna Suðurnesja 15. október 2026 (2026010077)
Lögð fram til kynningar fundargerð Brunavarna Suðurnesja.
8. Umsagnarmál frá nefndasviði Alþingis (2026010648)
Frumvarp til sveitarstjórnarlaga, 5. mál
Lögð fram umsögn Reykjanesbæjar um frumvarp til sveitarstjórnarlaga, 5. mál á 158. l0ggjafarþingi. Bæjarráð felur Vilhjálmi Árnasyni bæjarstjóra að senda umsögnina í samráðsgátt Alþingis.
9. Stjórnarfundur Tjarnargötu 12 ehf. – framkvæmdir (2026100178)
Guðlaugur Helgi Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs, Hreinn Ágúst Kristinsson deildarstjóri eignaumsýslu og Regína Fanný Guðmundsdóttir, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, sitja fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram minnisblað um stöðu framkvæmda við Ráðhús Reykjanesbæjar að Tjarnargötu 12 og áætlun um næstu verkþætti.
Stjórn Tjarnargötu 12 ehf. samþykkir að vinna áfram með fyrirliggjandi áætlun í samræmi við umræður á fundinum. Einnig að farið verði í verðkönnum á lausabúnaði og að lyftur verði endurnýjaðar.
Nothing else was done and the meeting was adjourned at 10:28.