Beint í efni

23. fundur öldungaráðs Reykjanesbæjar

Fundurinn var haldinn þann 13. October 2025 kl. 14.00.

Fundarstaður: Nesvellir

Viðstaddir: Borgar Jónsson- formaður nefndar, Guðrún Eyjólfsdóttir- aðalmaður, Ingibjörg Magnúsdóttir aðalmaður, Karítas Lára Rafnkelsdóttir- aðalmaður, Kristján B. Gíslason varamaður

Að auki sátu fundinn Margrét Arnbjörg Valsdóttir, teymisstjóri öldrunar- og stuðningsþjónustu og Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir ritari.

Rúnar V. Arnarson boðaði forföll.

Kristján Gunnarsson boðaði forföll og sat Kristján B. Gíslason fundinn í hans stað

Agenda

1. Nýtt hjúkrunarheimili (2019050812)

Þuríður Ingibjörg Elísdóttir, forstöðumaður Hrafnistu Nesvöllum, mætti á fundinn og fór yfir stöðu mála varðandi nýtt hjúkrunarheimili á Nesvöllum.

2. Þjónustumiðstöð Nesvöllum - breytingar á eldhúsi Hrafnistu (2023070388)

Margrét Arnbjörg Valsdóttir, teymisstjóri öldrunar- og stuðningsþjónustu, gerði grein fyrir fyrirhuguðum breytingum á rekstri eldhúss Hrafnistu í þjónustumiðstöðinni að Nesvöllum. Hrafnista hefur ákveðið að draga sig út úr rekstri eldhússins og verður reksturinn boðinn út. Eldhúsið mun áfram framleiða mat fyrir þjónustumiðstöðina og heimsendan mat.

3. Ofbeldi gegn eldra fólki (2025100141)

Borgar Jónsson formaður öldungaráðs lagði til að í ljósi þeirrar umræðu sem verið hefur um málefnið í þjóðfélaginu undanfarið standi öldungaráð í samstarfi við öldrunar- og stuðningsþjónustu Reykjanesbæjar og Félag eldri borgara á Suðurnesjum fyrir fræðslu um ofbeldi gagnvart eldra fólki.

Öldungaráð felur formanni ráðsins og teymisstjóra öldrunar- og stuðningsþjónustu að vinna málið áfram í samstarfi við Félag eldri borgara á Suðurnesjum.

4. Gjaldskrá heima- og stuðningsþjónustu (2025060320)

Margrét Arnbjörg Valsdóttir, teymisstjóri öldrunar- og stuðningsþjónustu, kynnti tillögu að breytingum á gjaldskrá heima- og stuðningsþjónustu.

Nothing else was done and the meeting was adjourned at 15:06.