Beint í efni

24. fundur öldungaráðs Reykjanesbæjar

Fundurinn var haldinn þann 15. December 2025 kl. 15.00.

Fundarstaður: Nesvellir

Viðstaddir: Borgar Jónsson- formaður nefndar, Guðrún Eyjólfsdóttir- aðalmaður, Ingibjörg Magnúsdóttir aðalmaður, Karítas Lára Rafnkelsdóttir- aðalmaður, Kristján Gunnarsson aðalmaður, Rúnar V. Arnarson aðalmaður

Að auki sátu fundinn Margrét Arnbjörg Valsdóttir, teymisstjóri öldrunar- og stuðningsþjónustu og Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir ritari.

Agenda

1. Sameining dagdvala (2024050055)

Margrét Arnbjörg Valsdóttir, teymisstjóri öldrunar- og stuðningsþjónustu, fór yfir stöðu mála varðandi sameiningu dagdvala Reykjanesbæjar.

2. Þjónustumiðstöð Nesvöllum - rekstur eldhúss (2025120053)

Margrét Arnbjörg Valsdóttir, teymisstjóri öldrunar- og stuðningsþjónustu, sagði frá því að nýr rekstraraðili, Kiwi veitingar ehf., hafi nú tekið við rekstri eldhússins í þjónustumiðstöðinni að Nesvöllum. Eldhúsið framleiðir mat fyrir mötuneytið í þjónustumiðstöðinni og heimsendan mat fyrir skjólstæðinga öldrunar- og stuðningsþjónustu Reykjanesbæjar. Ákveðið var að stofna samráðshóp öldrunar- og stuðningsþjónustu, Félags eldri borgara á Suðurnesjum og rekstraraðila, sem mun fylgja verkefninu eftir.

3. Ofbeldi gegn eldra fólki - fræðsla (2025100141)

Fræðslufundur um ofbeldi gegn eldra fólki verður haldinn í þjónustumiðstöðinni að Nesvöllum 22. janúar 2026 kl. 13. Erindi flytja Hjördís Garðarsdóttir frá Neyðarlínunni, María Pálsdóttir frá lögreglunni á Suðurnesjum, Inga Dóra Jónsdóttir, teymisstjóri hjá Suðurhlíð, miðstöð fyrir þolendur ofbeldis, auk fulltrúa frá Sýslumanninum á Suðurnesjum. Um er að ræða samstarfsverkefni öldungaráðs Reykjanesbæjar, öldrunar- og stuðningsþjónustu Reykjanesbæjar og Félags eldri borgara á Suðurnesjum.

4. Nýtt hjúkrunarheimili (2019050812)

Þuríður Ingibjörg Elísdóttir, forstöðumaður Hrafnistu Nesvöllum, tók á móti fulltrúum í öldungaráði og sýndi þeim nýja hjúkrunarheimilið að Njarðarvöllum 2 sem verður opnað formlega í janúar 2026. Þar verða 80 hjúkrunarrými, þar af munu 30 hjúkrunarrými flytjast frá Hrafnistu Hlévangi.

Nothing else was done and the meeting was adjourned at 16:10.