Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

312. fundur atvinnu- og hafnarráðs Reykjanesbæjar

Fundurinn var haldinn þann 15. October 2026 kl. 15.00.

Fundarstaður: Víkurbraut 11

Viðstaddir: Alexander Ragnarsson formaður nefndar, Magnús Einþór Áskelssoon aðalmaður, Rúnar Fossádal Árnason aðalmaður, Sigurður Guðjónsson aðalmaður, Tryggvi Þór Bragason aðalmaður

Að auki sat fundinn Halldór Karl Hermannsson, sviðsstjóri atvinnu- og hafnarsviðs, sem ritaði fundargerð.

Agenda

1. Skemmtiferðaskip

Halldóra Guðrún Jónsdóttir, sviðsstjóri þjónustu- og menningarsviðs og Þuríður Aradóttir Braun, verkefnastjóri hjá Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum, sátu fundinn undir þessum dagskrárlið. Einnig sátu fundinn í gegnum fjarfundabúnað Linus Mattson og Ludwig Böss, fulltrúar Nordic Port Group ab. 

Farið var yfir hvernig tekist hefur til við móttöku skemmtiferðaskipa í Keflavíkurhöfn nú í sumar, hvað hefur tekist vel og hvað má bæta.

Atvinnu- og hafnarráð lýsir ánægju sinni með þann árangur sem náðst hefur í markaðssetningu Keflavíkurhafnar fyrir smærri skemmtiferðaskip en leggur áherslu á að þetta verkefni er samstarfsverkefni hagaðila á svæðinu. Með það að leiðarljósi þurfa fulltrúar leiðandi hagaðila eins og Reykjaneshafnar, Reykjanesbæjar og Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum að vinna náið saman að þessari markaðssetningu.

2. Reykjaneshöfn - merki hafnarinnar

Halldóra Guðrún Jónsdóttir, sviðsstjóri þjónustu- og menningarsviðs, sat fundinn undir þessum dagskrárlið.

Farið var yfir fyrirliggjandi tillögur að merki Reykjaneshafnar.

Atvinnu- og hafnarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu og vísar henni til bæjarstjórnar Reykjanesbæjar til staðfestingar.

3. Ferðamál - áhersluatriði 2027

Halldóra Guðrún Jónsdóttir, sviðsstjóri þjónustu- og menningarsviðs, sat fundinn undir þessum dagskrárlið.

Lögð fram drög að þeim áhersluatriðum sem horft verður til varðandi ferðamál í Reykjanesbæ árið 2027. Einnig lagt fram minnisblað með rökstuðningi fyrir starfsmanni sem myndi sinna ferðamálum hjá Reykjanesbæ og markaðssetningu Reykjaneshafnar gagnvart skemmtiferðaskipum. 

Atvinnu- og hafnarráði líst vel á fyrirliggjandi drög að áhersluatriðum í ferðamálum. Atvinnu- og hafnarráð samþykkir jafnframt að óska eftir því við bæjarstjórn Reykjanesbæjar að í fjárhagsáætlun ársins 2027 verði sett inn fjármagn til að mæta þeim áherslum sem fram koma í fyrirliggjandi minnisblaði um starfsmann sem sinnir ferðamálum í Reykjanesbæ.

4. Atvinnumál - áhersluatriði 2027

Lögð fram drög að þeim áhersluatriðum sem horft verður til varðandi atvinnumál í Reykjanesbæ árið 2027. 

Atvinnu- og hafnarráði líst vel á fyrirliggjandi drög að áhersluatriðum í atvinnumálum.

5. K64 Hringrásaiðngarður

Lagt fram minnisblað frá fundi faghóps um Hringrásariðngarð frá 22. september 2026.

6. Fjárhagsáætlun atvinnu- og hafnarsviðs 2027

Farið yfir stöðuna á vinnslu fjárhagsáætlunar atvinnu- og hafnarsviðs fyrir árið 2027.

7. Njarðvíkurhöfn - brimvarnargarður

Lagðar fram verkfundargerðir 17. og 18. funda frá 22. september og 7. október 2026 ásamt verkstöðuyfirlitum.

8. Helguvíkurhöfn - Suðurbakki

Farið yfir stöðuna á hönnun útboðsgagna vegna uppbyggingar á nýrri hafnaraðstöðu og eldsneytisbirgðastöð á hafnarsvæði Helguvíkurhafnar.

9. Hafnasambandsþing 2026

Lagt fram bréf Hafnasambands Íslands, dags. 14. september 2026, þar sem boðað er til Hafnasambandsþings dagana 22. og 23. október n.k. hér í Reykjanesbæ. Jafnframt  var lagður fram listi yfir aðildarhafnir Hafnasambandsins með fjölda atkvæðabærra fulltrúa á þinginu, en Reykjaneshöfn á rétt á fimm fulltrúum. Reykjaneshöfn ásamt Grindavíkur- og Sandgerðishöfn eru undirbúningsaðilar að þinginu í samstarfi við Hafnasamband Íslands.  

Atvinnu- og hafnarráð lýsir ánægju sinni yfir því að Hafnasambandsþing 2026 skuli haldið í Reykjanesbæ enda aðstæður hér í bæ einstaklega hentugar fyrir slíka atburði. Atvinnu- og hafnarráð samþykkir að aðalmenn í atvinnu- og hafnarráði verði fulltrúar Reykjaneshafnar á þinginu ásamt sviðsstjóra atvinnu- og hafnarsviðs, sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs og bæjarstjóra Reykjanesbæjar. Jafnframt er sviðsstjóra atvinnu- og hafnarsviðs falið að bjóða aðalmönnum í bæjarstjórn að sitja hátíðarkvöldverð þingsins sem fram fer fimmtudaginn 22. október n.k.

10. Samráðsnefnd atvinnu- og hafnarráðs, skipulagsráðs og umhverfis- og framkvæmdarráðs

Fundargerð 28. fundar samráðsnefndar atvinnu- og hafnarráðs, skipulagsráðs og umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 8. október sl. lögð fram. Í dagskrárlið 2, Njarðarbraut - fyrirhugaðar framkvæmdir, var óskað eftir tillögu atvinnu- og hafnarráðs varðandi vegtengingu við Njarðvíkurhöfn og var farið yfir tillögu um slíka vegtenginu. 

Atvinnu- og hafnarráð felur sviðsstjóra atvinnu- og hafnarsviðs að koma tillögu um hringtorg á gatnamótum Fitjabrautar og Sjávargötu á framfæri við skipulagsráð og umhverfis- og framkvæmdaráð. Viðkomandi tillaga tryggir að mati atvinnu- og hafnarráðs það umferðarflæði sem þarf að vera á þessu svæði í framtíðinni. 

Atvinnu- og hafnarráð tekur undir bókun í dagsskrárlið 6, Skipulag og starfsskilyrði fyrirtækja, en þar er lögð áhersla á að við breytingar í skipulagsmálum þarf að taka tillit til þeirrar atvinnustarfsemi sem er á viðkomandi svæðum.

11. Upplýsingagjöf sviðsstjóra

Halldór K. Hermannsson, sviðsstjóri atvinnu- og hafnarsviðs, fór yfir stöðu ýmissa mála er varða starfsemi sviðsins.

Í upplýsingagjöf sviðsstjóra kemur m.a. fram að fyrirtæki sem staðsett eru á Reykjanesi, m.a. í auðlindagarði HS Orku hf., með vegtengingu um Nesveg 425, lýsa miklum áhyggjum sínum vegna þeirrar vetrarþjónustu sem þar er fyrirhuguð en sú þjónusta er takmörkuð við þrjá daga í viku og fullnægir ekki þeirri umferð, atvinnustarfsemi og öryggisþörf sem er á svæðinu. Um veginn fer mikil umferð daglega vegna atvinnustarfsemi á svæðinu, þar á meðal þungavinnuvélar, vöruflutningabifreiðar og hundruð starfsmanna. Ófærð og hálka skerða umferðaröryggi, tefja vöruflutninga, torvelda rekstur fyrirtækja og geta komið í veg fyrir að starfsfólk komist til og frá vinnu. Vegurinn er einnig hluti almannavarna svæðisins sem flóttaleið vegna jarðhræringa og þarf því að vera greiðfær þegar aðstæður krefjast þess.

Atvinnu- og hafnaráð tekur undir áhyggjur þessara fyrirtækja og hvetur til þess að þjónustustig vegarins verði endurmetið nú þegar þannig að vetrarþjónusta Nesvegar 425 verði viðunandi í framtíðinni.

Nothing else was done and the meeting was adjourned at 17:55.