Beint í efni

453. fundur velferðarráðs Reykjanesbæjar

Fundurinn var haldinn þann 9. April 2026 kl. 13.00.

Fundarstaður: Grænásbraut 910 - Súlur

Viðstaddir: Andri Fannar Freysson- aðalmaður, Birna Ósk Óskarsdóttir aðalmaður, Eyjólfur Gíslason- aðalmaður, Sigurrós Antonsdóttir- formaður nefndar, Unnar Stefán Sigurðsson- aðalmaður

Að auki sátu fundinn Hera Ósk Einarsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs, Hilma Hólmfríður Sigurðardóttir, teymisstjóri virkni- og ráðgjafarteymis og Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir ritari.

Agenda

1. Frumkvæðisathugun á vinnslu barnaverndarmála - niðurstöður og drög að úrbótaáætlun (2026030114)

Henný Úlfarsdóttir teymisstjóri barnaverndarþjónustu mætti á fundinn.

Niðurstöður frumkvæðisathugunar Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála lagðar fram. Skipað hefur verið úrbótateymi og vinna hafin við gerð úrbótaáætlunar sem lögð verður fyrir Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála eigi síðar en 29. apríl 2026. Stefnt er að því að innleiðingu úrbóta verði lokið fyrir árslok 2026.

2. Starfsáætlun farsældarráðs Suðurnesja 2026 og Ávísun á farsæld (2025060040)

Hjördís Eva Þórðardóttir, verkefnastjóri farsældar barna á Suðurnesjum, mætti á fundinn og kynnti starfsáætlun farsældarráðs Suðurnesja fyrir árið 2026. Auk þess kynnti hún verkefnið Ávísun á farsæld, heildstætt þróunarverkefni sem sameinar heilsugæslu, skólakerfið, frístundir, íþróttir og fjölskyldur barna. Markmiðið er að fjölga úrræðum á fyrsta stigi og efla enn frekar heildrænan stuðning við börn og fjölskyldur á Suðurnesjum.

Velferðarráð þakkar Hjördísi fyrir góða kynningu.

Velferðarráð telur mikilvægt að framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga styðji betur við uppbyggingu og þjónustu svæðisins. Í samanburði við framlög til annarra landshluta er áberandi hversu lág framlög Jöfnunarsjóðs til Suðurnesja eru.

3. Reglur um fjárhagsaðstoð – tillaga til breytingar (2022010182)

Hilma Hólmfríður Sigurðardóttir, teymisstjóri virkni- og ráðgjafarteymis, lagði fram tillögu að breytingu á 23. grein reglna Reykjanesbæjar um fjárhagsaðstoð. Lagt er til að velferðarsvið Reykjanesbæjar gefi út ábyrgðaryfirlýsingar í stað lánveitinga vegna tryggingar á húsaleigu.

Velferðarráð samþykkir breytingu á 23. grein í reglum Reykjanesbæjar um fjárhagsaðstoð í samræmi við framlagða tillögu.

4. Ársskýrsla og mælaborð velferðarsviðs 2025 (2025060044)

Hera Ósk Einarsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs kynnti ársskýrslu og mælaborð velferðarsviðs fyrir árið 2025.

5. Fjárhagsaðstoð og sérstakur húsnæðisstuðningur - tölulegar upplýsingar (2026020248)

Tölulegar upplýsingar vegna fjárhagsaðstoðar og sérstaks húsnæðisstuðnings í mars 2026 lagðar fram.

Fjárhagsaðstoð

Í mars 2026 fengu 92 einstaklingar greidda fjárhagsaðstoð til framfærslu frá Reykjanesbæ. Alls voru greiddar 12.799.875 kr. í fjárhagsaðstoð til framfærslu eða að meðaltali um 139.129 kr. á hvern einstakling. Fjöldi barna á framfæri foreldra/forráðamanna á fjárhagsaðstoð voru 22.

Í mars 2025 fengu 147 einstaklingar greidda fjárhagsaðstoð til framfærslu frá Reykjanesbæ. Alls voru greiddar 22.913.515 kr. í fjárhagsaðstoð til framfærslu eða að meðaltali 155.874 kr. á hvern einstakling. Fjöldi barna á framfæri foreldra/forráðamanna á fjárhagsaðstoð voru 53.

Sérstakur húsnæðisstuðningur

Í mars 2026 fékk 271 einstaklingur greiddan sérstakan húsnæðisstuðning sveitarfélagsins. Samtals voru greiddar 6.861.874 kr.

Í mars 2025 fengu 264 einstaklingar greiddan sérstakan húsnæðisstuðning sveitarfélagsins, samtals 6.689.664 kr. 

Áfrýjunarnefnd

Í mars 2026 var haldinn einn fundur áfrýjunarnefndar. 6 mál voru lögð fyrir nefndina. Þrjú erindi voru samþykkt, tveimur erindum synjað og einu erindi frestað.

Nothing else was done and the meeting was adjourned at 15:51.