Rokksafn Íslands

Rokksafn Íslands er safn um sögu popp- og rokktónlistar á Íslandi. Safnið er staðsett í Hljómahöll í Reykjanesbæ.

Á safninu er að finna tímalínu um sögu íslenskrar tónlistar á Íslandi allt frá árinu 1830 til dagsins í dag. Á safninu er að finna lítinn kvikmyndasal þar sem sýndar eru ýmsar heimildarmyndir um íslenska tónlist og hljóðbúr þar sem gestir geta leikið lausum hala og prófað rafmagnstrommusett, gítar, bassa og sungið í sérhönnuðum söngklefa.

Á meðal þeirra muna sem eru að finna á safninu er trommusett Gunnars Jökuls Hákonarsonar sem var m.a. notað á meistaraverkinu Lifun með Trúbrot, kjól sem Emilíana Torrini klæddist í myndbandinu Jungle Drum, tréskúlptúr af reggí-hljómsveitinni Hjálmum, lúðrasveitarjakka sem Stuðmenn klæddust í myndinni Með allt á hreinu, kjól af Elly Vilhjálms, föt af Rúnari Júlíussyni, jakkaföt af Herberti Guðmundssyni, hljóðnema sem Megas söng í á tveimur plötum og þannig mætti lengi telja. 

Í Rokksafni Íslands er að finna Rokkbúðina en þar má finna ýmsan varning tengdan rokksögunni s.s. ævisögur um íslenska tónlistarmenn, bækur sem rekja sögu tónlistar á Íslandi, geisladiska, vínylplötur, íslenskar heimildarmyndir um tónlist, varning frá Sigur Rós, Björk, Of Monsters and Men, Páli Óskari, Björgvini Halldórssyni og mörgum fleiri, trommukjuða, gítarstrengi, gítarneglur, gítarsnúrur, heyrnartól, hátalara og svo auðvitað vinsælustu vöruna - boli sem eru merktir Rokksafni Íslands - og margt margt fleira. Við mælum eindregið með heimsókn í Rokk-búðina.