Sögur - heimurinn þinn!

Fyrir börn í 3. - 6. bekk í grunnskóla.

Vilt þú skapa þinn heim? Þar sem þú ræður öllu? Kannski ævintýraheim, hrollvekjuheim, íþróttaheim eða hvað sem er?

Taktu þátt í smiðju með rithöfundinum Gunnari Helgasyni sem kennir krökkum að skrifa smásögu, leikrit, stuttmyndahandrit eða útvarpsleikrit.  Þitt skapandi verkefni gæti verið valið í Sögur - verðlaunahátíð barnanna á RÚV

Það kostar ekkert að taka þátt en aðeins 30 krakkar komast að á hverjum stað. 

Skráning í Bókasafni Reykjanesbæjar og HÉR á heimasíðu safnsins. 

Hvenær: 5., 7., og 12. október frá klukkan 16.00 - 17.00
Hvar: Bíósalur Duus Safnahús