Teikninámskeið fyrir krakka í 7. – 10.bekk

Þriðjudaginn 3.nóvember hefst teikninámskeið í Bókasafni Reykjanesbæjar.  Þórarinn Örn kennir námskeiðið en unga listafólkið ræður viðfangsefninu sjálft og getur sótt innblástur frá bókum í safninu.

Þórarinn leggur áherslu á að kenna grunnþætti forma, skyggingu og hvernig er hægt að beita þeim í að teikna ævintýraverur, landslag eða það sem vilji er fyrir að teikna.

 Námskeiðið er frítt en nauðsynlegt er að skrá þátttöku. HÉR er hægt að skrá þátttöku.

Námskeiðið verður í 2 vikur, á þriðjudögum og fimmtudögum frá klukkan 16.00 til 18.00