Yfirsýn: Ljósmyndasýning Hilmars Braga Bárðarsonar

Velkomin á opnun sýningar Hilmars Braga í Átthagastofu Bókasafns Reykjanesbæjar fimmtudaginn 30. janúar 2020 kl. 17.00
 
Hilmar Bragi Bárðarson hefur starfað við fréttamennsku hjá Víkurfréttum í yfir þrjátíu ár. Samhliða starfi sínu sem blaðamaður hefur hann tekið ógrynni ljósmynda um öll Suðurnes og öðlast þannig góða yfirsýn yfir samfélagið á suðunesjum.
 
Á þessari sýningu sýnir Hilmar Bragi ljósmyndir frá sjónarhorni sem við eigum ekki að venjast, allar myndirnar eru teknar með dróna og flestar lóðrétt niður.
 
Allir hjartanlega velkomnir.