Frá yfirkjörstjórn Reykjanesbæjar

Reykjanesbæ, 6. maí 2022

Með vísan til 1. mgr. 5. gr. reglugerðar nr. 431/2022 auglýsir yfirkjörstjórn sveitarfélagsins hér með hvar og hvenær talning atkvæða í sveitarstjórnarkosningum þann 14. maí næstkomandi fer fram.

Talning atkvæða fer fram í húsakynnum Fjölbrautaskóla Suðurnesja að Sunnubraut 36 í Reykjanesbæ. Talning fer fram fyrir opnum tjöldum og hefst hún kl. 22:00.

Fyrir hönd yfirkjörstjórnar,
Jóna Hrefna Bergsteinsdóttir, formaður