Í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér með auglýst eftirfarandi deiliskipulags breyting.
Deiliskipulagsbreyting Stapabraut 21.
Skipulagið gerir ráð fyrir húsnæði og aðstöðu fyrir bílaleigu og aðra ferðatengda þjónustu.
Tillögur verða til sýnis á skrifstofu Reykjanesbæjar að Tjarnargötu 12 frá og með 27. júlí 2017 til 7. september 2017. Tillögur eru einnig aðgengilegar á heimasíðu Reykjanesbæjar,www.reykjanesbaer.is.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 7. september 2017. Skila skal inn skriflegum athugasemdum á skrifstofu Reykjanesbæjar á Tjarnargötu 12 Reykjanesbæ.
Skýringarmyndir, Stapabraut 21
Deiliskipulagsbreyting, Stapabraut 21
Reykjanesbæ, 21. júlí 2017.
Skipulagsfulltrúi