Deiliskipulagsbreyting Stapabraut 21

Í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst eftirfarandi deiliskipulagsbreyting.

Stapabraut 21
Skipulagið gerir ráð fyrir húsnæði og aðstöðu fyrir bílaleigu og aðra ferðatengda þjónustu.
Tillögur verða til sýnis á skrifstofu Reykjanesbæjar að Tjarnargötu 12 frá og með 6. desember 2018 til 17.janúar 2019. Tillögur eru einnig aðgengilegar á heimasíðu Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 17. janúar 2019. Skila skal inn skriflegum athugasemdum á skrifstofu Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12, Reykjanesbæ eða á netfang skipulagsfulltrúa gunnar.k.ottosson@reykjanesbaer.is þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram.

Reykjanesbæ, 26. nóvember 2018.
Skipulagsfulltrúi

Deiliskipulagsbreyting Stapabraut 21