173. fundur

12.09.2023 11:00

173. fundur íþrótta- og tómstundaráðs Reykjanesbæjar var haldinn að Tjarnargötu 12 þann 12. september 2023, kl. 11:00

Viðstaddir: Friðþjófur Helgi Karlsson formaður, Davíð Már Gunnarsson, Friðjón Einarsson, Hjördís Baldursdóttir og Marta Sigurðardóttir.

Birgir Már Bragason boðaði forföll, Davíð Már Gunnarsson sat fundinn fyrir hann.

Sindri Kristinn Ólafsson boðaði forföll, Friðjón Einarsson sat fundinn fyrir hann.

Að auki sátu fundinn Hafþór Barði Birgisson íþrótta- og tómstundafulltrúi, Hermann Borgar Jakobsson áheyrnafulltrúi ungmennaráðs og Íris Eysteinsdóttir ritari.

1. Drög að breyttum reglum afreks- og íþróttasjóðs Reykjanesbæjar (2023010047)

Drög að breyttum reglum afreks- og íþróttasjóðs Reykjanesbæjar lögð fram.

2. Taekwondodeild Keflavíkur (2023090119)

Atli Þorsteinsson formaður Taekwondodeildar Keflavíkur kynnti starfsemi deildarinnar.

Íþrótta- og tómstundaráð þakkar Atla fyrir góða kynningu. Í máli hans kom fram að mikil aðsókn er í starf deildarinnar og komið er að endurnýjun búnaðar og nýjum keppnisbúnaði. Erindi þess efnis er væntanlegt til ráðsins og verður tekið fyrir í fjárhagsáætlunarvinnu ráðsins.

3. Fimleikadeild Keflavíkur (2023070012)

Anna Sigríður Jóhannesdóttir formaður fimleikadeildar Keflavíkur og Unnur Kristinsdóttir annar varaformaður fimleikadeildar Keflavíkur kynntu starfsemi og þarfir deildarinnar.

Íþrótta- og tómstundaráð þakkar fyrir greinargóða kynningu og vísar erindinu til fjárhagsáætlunarvinnu haustsins.

4. Samningur við Hestamannafélagið Mána um eflingu barna- og ungmennastarfs 2023 (2023010525)

Samningurinn við Hestamannafélagið Mána um eflingu barna- og ungmennastarfs 2023 lagður fram.

Íþrótta- og tómstundaráð samþykkir samninginn.

5. Fjárhagsáætlun íþrótta- og tómstundamála 2024 (2023080212)

Hafþór Birgisson íþrótta- og tómstundafulltrúi sagði frá vinnu við fjárhagsáætlun 2024.

6. Frístundastefna Reykjanesbæjar (2023050566)

Gunnhildur Gunnarsdóttir forstöðumaður Fjörheima og 88 Hússins fylgdi úr hlaði erindisbréfi varðandi frístundastefnu Reykjanesbæjar.

Íþrótta- og tómstundaráð óskar vinnuhópnum góðs gengis og vill fá reglulegar upplýsingar af vinnu hópsins.

Fylgigögn:

Erindisbréf - nefnd um gerð frístundastefnu Reykjansbæjar

Frístundastefna Reykjanesbæjar - kynning

7. Skýrsla Skátafélagsins Heiðabúa vegna kofabyggðar sumarið 2023 (2023020613)

Skýrsla Skátafélagsins Heiðabúa vegna kofabyggðar sumarið 2023 lögð fram.

Íþrótta- og tómstundaráð þakkar fyrir skýrsluna og minnir jafnframt á að finna þarf starfseminni nýjan stað næsta sumar.


Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 12.55. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 19. september 2023.