4. fundur

18.12.2019 15:00

4. fundur framtíðarnefndar Reykjanesbæjar var haldinn að Tjarnargötu 12 þann 18. desember 2019 kl. 15:00

Viðstaddir: Kolbrún Jóna Pétursdóttir formaður, Andri Örn Víðisson, Ríkharður Ibsen, Styrmir Gauti Fjeldsted, Súsanna Björg Fróðadóttir, Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri og Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir ritari.

1. Framtíðin í sorpmálum - hvert viljum við stefna? (2019050814)

Steinþór Þórðarson, framkvæmdastjóri Kölku, mætti á fundinn og kynnti stöðu mála varðandi sorphirðu í sveitarfélögum á Suðurnesjum og hvaða leiðir er hægt að fara til að auka flokkun sorps á svæðinu.

2. Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbærni (2019051904)

Halldóra G. Jónsdóttir, aðstoðarmaður bæjarstjóra og verkefnastjóri Reykjanesbæjar um innleiðingu Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna, mætti á fundinn. Hún kynnti verkefnið og samstarf sveitarfélaga á Suðurnesjum, Isavia og Kadeco.

Fylgigögn:

Heimsmarkmiðin og Suðurnesjavettvangur - kynning


Framtíðarnefnd samþykkir að bæta eftirfarandi máli á dagskrá fundarins:

3. Upplýsingatæknistefna Reykjanesbæjar (2019120279)

Magnús Bergmann Hallbjörnsson, forstöðumaður upplýsinga- og tæknimála, mætti á fundinn og kynnti upplýsingatæknistefnu Reykjanesbæjar.


Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17:20. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 7. janúar 2020.