13. fundur

21.10.2020 15:00

13. fundur framtíðarnefndar Reykjanesbæjar, fjarfundur haldinn þann 21. október 2020 kl. 15:00

Viðstaddir: Kolbrún Jóna Pétursdóttir formaður, Andri Örn Víðisson, Styrmir Gauti Fjeldsted, Súsanna Björg Fróðadóttir, Ríkharður Ibsensson, Halldóra G. Jónsdóttir aðstoðarmaður bæjarstjóra og Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir ritari.

1. Umhverfisstefna Reykjanesbæjar (2020021391)

Bjarni Herrera Þórisson, Hafþór Ægir Sigurjónsson og Anna Jia frá Circular Solutions mættu á fundinn og kynntu drög að umhverfisstefnu Reykjanesbæjar.

Framtíðarnefnd hyggst halda vinnufund með umhverfis- og skipulagsráði í nóvember þar sem stefnt er að því að klára umhverfisstefnuna áður en hún fer til umsagnar inn í nefndir og ráð.

2. Framtíðarsýn Aðaltorgs (2020100244)

Málinu er frestað.

3. Uppbygging innviða fyrir rafbíla í Reykjanesbæ (2020090208)

Halldóra G. Jónsdóttir, aðstoðarmaður bæjarstjóra, fór yfir upplýsingar og tillögu að útfærslu vegna uppbyggingar innviða fyrir rafbíla í Reykjanesbæ.

Framtíðarnefnd leggur til að hafin verði vinna við uppbyggingu innviða fyrir rafbíla í Reykjanesbæ.


Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 16:32. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 3. nóvember 2020.