Foreldrafræðsla og uppeldisnámskeið framundan

Skólaþjónustan býður uppá ýmis fræðslu- og uppeldisnámskeið sem miða að því að styrkja foreldra í uppeldishlutverki sínu og aðstoða börnin við að takast á við tiltekinn vanda. Ólík námskeið eru í boði og eru þau sérsniðin að ólíkum aldri og þörfum barnanna. Námskeiðin byggja á vel rannsökuðum aðferðum og allir leiðbeinendur hafa viðurkennda og löggilda fagmenntun. 

 Hér fyrir neðan eru nánari upplýsingar um námskeiðin.

  • Námskeið fyrir foreldra leikskólabarna

    Uppeldi sem virkar - færni til framtíðar

    Á námskeiðinu er lögð áhersla á að fjalla um leiðir til að vera samtaka í uppeldinu og skapa æskileg uppeldisskilyrði. Markmiðið er að ýta undir færni sem líkleg er til að nýtast barninu til frambúðar. Foreldrar læra aðferðir til að styrkja eigin hæfni, laða fram æskilega hegðun barnsins og fyrirbyggja erfiðleika á jákvæðan hátt. Námskeiðin hafa verið haldin um árabil með góðum árangri. Námskeiðið er sérstaklega þróað fyrir foreldra barna á Íslandi, þar sem stuðst er við viðurkennd fræði og gagnreyndar aðferðir. Höfundar námskeiðsins eru Gyða Haraldsdóttir, doktor í sálfræði og Lone Jensen, þroskaþjálfi. 

    Við hvetjum þig til að nýta þér þetta frábæra tækifæri til að efla þig í foreldrahlutverkinu.

    Nánar um námskeiðið

    Ýmist hefur verið boðið upp á  stað- eða fjarnámskeið. Hvert námskeið er samtals 8 klukkustundir sem dreifist yfirleitt á fjórar vikur. Kennt er einu sinni í viku í tvær klukkustundir í senn.

    Næsta námskeið verður; 

    • Vefnámskeið verður kennt dagana 9, apríl, 16. apríl, 23. apríl og 30. apríl frá klukkan 19.30 - 21.30. Kennt verður í gegnum fjarfundarlausn.

    Báðir foreldrar eru hvattir til að sitja námskeiðið. Námskeiðið er niðurgreitt að stærstum hluta af Reykjanesbæ. Námskeiðsgjald á fjölskyldu er 10.000 kr. og
    námskeiðsgögn eru innifalin.

    Smelltu hér til að skrá þig !

  • Námskeið fyrir foreldra barna með kvíða

    Skólaþjónusta býður uppá námskeið fyrir foreldra barna á aldrinum 4 til 12 ára með kvíða. Ólík námskeið eru í boði og eru þau sérsniðiðin að aldri og þörfum barnanna. Námskeiðin miða að því að fræða foreldra um eðli kvíða og kenna þeim leiðir til þess að takast á við kvíðahegðun barna sinna og auka sjálfstraust þeirra. Námskeiðin byggja á vel rannsökuðum aðferðum og eru kennd af sálfræðingum skólaþjónustu. Vonast er til að með námskeiðunum verði hægt að minnka kvíðahegðun barna og í sumum tilfellum koma í veg fyrir að börn þrói með sér kvíðaröskun seinna meir.

    Við skráningu eru foreldrar beðnir um að svara spurningarlista um stöðu barnsins, sem er nýttur til að meta hvaða námskeið hentar barni og foreldrum best.

    Skráning og námskeiðsgjald

    Frekari upplýsingar um skráningu, námskeiðsgjald og tímasetningar  fyrir næsta námskeið verða birt síðar.

  • Námskeið fyrir foreldra barna með ADHD

    Tilgangur námskeiðsins er að fræða foreldra um áhrif ADHD á líf barna og styðja þá í að tileinka sér uppeldisaðferðir sem henta börnum með ADHD. Foreldrar skoða núverandi stöðu, gera áætlanir og framfylgja þeim til að taka á eða fyrirbyggja ýmsan vanda sem algengt er að komi upp. Markmiðið er að foreldrar læri hagnýtar og sannreyndar aðferðir sem nýtast þeim til lengri tíma.

    Námskeiðið hentar jafnt foreldrum barna sem hafa staðfesta ADHD greiningu sem og börnum þar sem grunur er um hamlandi einkenni ADHD. Efni námskeiðsins hentar best fyrir foreldra barna á aldrinum 5 - 12 ára, sem hafa ekki margar eða flóknar fylgiraskanir.

    Skráning og námskeiðsgjald

    Næsta námskeið  er áætlað um haustið 2024.

    Námskeiðið er niðurgreitt að stærstum hluta af skólaþjónustu. Námskeiðskostnaður er 12.500 krónur og verður sendur reikningur í heimabanka við upphaf námskeiðs.

     Smelltu hér til að skrá þig !