- Þjónusta
- Stjórnsýsla
Þú getur notað Google til að þýða þessa vefsíðu. Við tökum enga ábyrgð á nákvæmni þýðingarinnar. Þjónustan notar vafrakökur til þess að bæta upplifun notenda.
Í gær var skrifað undir tvenna samninga vegna Skógarbrautar 932. Annars vegar var samningur um breytingar á húsnæði og hinsvegar samningur um viðbyggingu við húsnæðið.
Skógarbraut 932 mun hýsa leikskóla. Stefnt er að því að klára húsnæðið fyrir næsta haust svo hægt verði að hefja starfsemi í húsnæðinu. Verkin voru boðin út og auglýst á Útboðsvefnum eins og reglur segja til um. Lægsta boð fyrir breytingarhlutann átti HUG verktakar en fyrir viðbyggingarhlutann Merkúr – Hýsi.
Guðlaugur H. Sigurjónsson sviðsstjóri Umhverfissviðs og Unnar Ragnarsson frá HUG verktökum handsala samninginn um breytingar á húsnæðinu við Skógarbraut 932.