Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Reglur Reykjanesbæjar um rafræna vöktun

1. gr. Umfang rafrænnar vöktunar og tilgangur

Reykjanesbær hefur sett upp stafrænar myndavélar í og við stofnanir sínar þar sem rafræn vöktun er talin nauðsynleg á grundvelli öryggis eða eignavörslu, sbr. 3. og 6. tölul. 9. gr. laga nr. 90/2018 og 3. gr. reglna nr. 50/2023 með áorðnum breytingum nr. 1329/2025.

Tilgangur með rafrænni myndavélavöktun er að gæta lögmætra hagsmuna Reykjanesbæjar s.s. að varna að eigur séu skemmdar, að farið sé um byggingar í leyfisleysi, að stuðla að öryggi allra íbúa og starfsmanna.

Er myndarvélum almennt komið upp í anddyrum, miðrýmum og öðrum opnum rýmum og utandyra t.d. á útileiksvæði.

Þeir staðir þar sem vöktun fer fram eru merktir með skýrum og aðgengilegum hætti, myndrænar og í formi texta.

2. gr. Meginreglur sem gilda um rafræna vöktun

Persónuupplýsingar sem verða til við rafræna vöktun skal fara með í samræmi við 8. gr. laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018.

Upplýsingunum er safnað í yfirlýstum, skýrum og málefnalegum tilgangi, sbr. 4. gr. reglna nr. 50/2023 með áorðnum breytingum nr. 1329/2025 og ekki unnar frekar í öðrum og ósamrýmanlegum tilgangi.

Þær skulu vera nægilegar, viðeigandi og ekki umfram það sem nauðsynlegt er miðað við tilgang vinnslunnar og unnar með sanngjörnum, málefnalegum og lögmætum hætti.

Reglunum er ætlað að tryggja meðalhóf og virða friðhelgi einkalífs þeirra sem sæta vöktun.

3. gr. Varðveisla persónuupplýsinga sem verða til við rafræna vöktun

Upplýsingar sem verða til við öryggismyndavélavöktun eru aldrei varðveittar lengur en í 90 daga nema lög heimili eða dómsúrskurður liggi fyrir.

Forstöðumönnum stofnana hjá Reykjanesbæ, þar sem rafræn vöktun öryggismyndavéla fer fram, ber að tryggja að gagnatakmarkanir geri ráð fyrir yfirskrift á stafrænum upptökum svo ekki sé farið fram yfir 90 daga varðveislutíma.

4. gr. Skoðun persónuupplýsinga sem verða til við rafræna vöktun

Gögn verða eingöngu skoðuð ef upp koma atvik er varða eignavörslu eða öryggi einstaklinga, s.s. þjófnaður, skemmdarverk eða slys eða ef grunur er um misnotkun eða refsiverðan verknað á netbúnaði sveitarfélagsins.

Einungis þeir sem til þess hafa heimild hjá Reykjanesbæ geta skoðað gögnin og skulu þeir hafa undirritað trúnaðar - og þagnarskylduyfirlýsingu vegna starfa sinna.

Beiðnir um skoðun fara eftir samþykktu ferli í gæðahandbók sveitarfélagsins.

Berist krafa frá aðila um skoðun gagna sem hafa orðið til við rafræna myndavélavöktun, skal meta hvort beiðnin sé lögmæt, gögn skulu vera skoðuð og gengið úr skugga um að upptaka sé af aðila.

Ef svo er þá er honum heimilað að skoða efnið eigi síðar en innan eins mánaðar frá móttöku erindis.

Séu aðrir persónugreinanlegir einstaklingar á upptöku skal þeim veittur kostur á að vera viðstaddir skoðun.

Komi upp ágreiningur, m.a. vegna hagsmuna þriðju aðila, má vísa honum til úrlausnar Persónuverndar.

Getur Persónuvernd þá lagt fyrir Reykjanesbæ að varðveita gögn þar til niðurstaða hennar liggur fyrir.

Ef skoðun á myndefni leiðir í ljós að grunur sé um eignarspjöll, slys, slagsmál eða mögulega refsiverða háttsemi þar sem börn koma við sögu skal forsjáraðilum þeirra barna gert viðvart og þeim gerð grein fyrir möguleika á því að fá að vera viðstaddir skoðun á efni.

Beiðni um skoðun skal send forstöðumanni/stjórnanda viðkomandi stofnunar.

5. gr. Afhending persónuupplýsinga sem verða til við rafræna vöktun

Upptökur og gögn sem verða til við rafræna vöktun verða almennt ekki afhentar öðrum en lögbærum yfirvöldum og þá ef um slys eða meintan refsiverðan verknað er að ræða.

Óheimilt er að afhenda þriðja aðila upplýsingar sem safnast hafa með öryggismyndavélum nema með skýru samþykki þess sem upptaka er af eða samkvæmt ákvörðun Persónuverndar.

6. gr. Athugasemdir/andmæli við framkvæmd vöktunar

Komi fram athugasemdir eða andmæli við framkvæmd vöktunar og/eða ábendingar um að hún uppfylli ekki þær kröfur sem settar eru í reglum þessum eða lögum skal hafa samband við persónuverndarfulltrúa Reykjanesbæjar, með því að senda tölvupóst á netfangið personuvernd@reykjansbaer.is.

Samþykkt í bæjarráði Reykjanesbæjar 18. desember 2025.