Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Almenningssamgöngur

Við viljum bjóða upp á hagkvæmar og aðgengilegar almenningssamgöngur sem nýtast í daglegu lífi. Kerfið á að þjóna öllum, þar á meðal börnum og ungmennum, og styðja þátttöku þeirra í íþrótta- og tómstundastarfi.

Innanbæjarstrætó

Upplýsingar um leiðir og tímatöflur má finna á: www.straeto.is

Þjónustuaðili er GTS ehf.

Sími: 894 2115 Netfang: rnb@gts.is

Á Facebook-síðu Strætó í Reykjanesbæ eru birtar upplýsingar um breytingar, truflanir og óskilamuni. Ábendingar má senda í gegnum Ábendingagátt Reykjanesbæjar.

Sumar- og vetraráætlun

Landsbyggðarstrætó

Leið 55 tengir Reykjanesbæ og höfuðborgarsvæðið. Leiðir 87, 88 og 89 tengja sveitarfélög á Suðurnesjum.

Upplýsingar eru á www.straeto.is.

Frí- og stórhátíðardagar

Ekki er ekið á helstu frídögum ársins, nema fyrir kl. 12:00 á aðfangadag og gamlársdag.

Frítt á viðburðum

Frítt er í innanbæjarstrætó á völdum viðburðum Reykjanesbæjar, svo sem Þrettándanum, BAUN, Safnahelgi og tendrun jólatrés. Upplýsingar á Ljósanótt eru auglýstar sérstaklega.