Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Atvinnu- og hafnarsvið

Atvinnu- og hafnarsvið vinnur að því að efla atvinnulíf í Reykjanesbæ og styðja við áframhaldandi uppbyggingu sveitarfélagsins. Sviðið sér einnig um rekstur og þróun hafna Reykjanesbæjar.

Markmiðið er að skapa góð skilyrði fyrir atvinnustarfsemi, nýsköpun og öflugt samstarf við atvinnulíf og samfélag.

Atvinnuþróun og nýsköpun

Sviðið vinnur að stefnumótun og þróun atvinnumála í Reykjanesbæ. Við leggjum áherslu á að styrkja atvinnulíf, styðja við ný tækifæri og skapa jákvætt umhverfi fyrir fyrirtæki og frumkvöðla.

Helstu verkefni eru meðal annars að:

  • kynna Reykjanesbæ sem álitlegan kost fyrir fyrirtæki og fjárfesta
  • taka á móti frumkvöðlum og fyrirtækjum sem vilja skoða tækifæri í sveitarfélaginu
  • styðja við uppbyggingu verslunar, þjónustu og atvinnusköpunar
  • leiðbeina fyrirtækjum og frumkvöðlum um stjórnsýslu, lóðir, húsnæði og styrki
  • efla samstarf fyrirtækja, stofnana og annarra hagaðila
  • taka þátt í stefnumótun og þróunarverkefnum sem tengjast atvinnulífi og viðskiptaþróun

Sviðið vinnur einnig náið með fyrirtækjum, samtökum atvinnulífs og öðrum samstarfsaðilum á Suðurnesjum.

Hafnir og hafnsækin starfsemi

Atvinnu- og hafnarsvið sér um rekstur og þróun Reykjaneshafnar og hafnsækinnar starfsemi í sveitarfélaginu.

Verkefni sviðsins fela meðal annars í sér:

  • rekstur hafna og skipulag hafnarþjónustu
  • þróun og umbætur í hafnarstarfsemi
  • samskipti við fyrirtæki sem leita eftir hafnaraðstöðu
  • umsýslu lóða og lands á hafnarsvæðum
  • öryggis- og umhverfismál hafnarinnar
  • markaðssetningu Reykjaneshafnar
  • áætlanagerð fyrir viðhald og nýframkvæmdir

Markmiðið er að skapa öfluga og örugga hafnarstarfsemi sem styður við atvinnulíf og þróun svæðisins.