Hvatagreiðslur

Bæjarstjórn Reykjanesbæjar hefur samþykkt að hvatagreiðslur fyrir foreldra barna 6 til 18 ára aldurs séu kr. 35.000.- frá 1. janúar 2020 til niðurgreiðslu á viðurkenndu íþrótta,- tómstunda- og listgreinastarfi.

Umsóknir um hvatagreiðslur þurfa að berast í gegnum vefinn mittreykjanes.is.