Sumarlestur 2024

Sumarlestur

Í Bókasafni Reykjanesbæjar í allt sumar frá
júní til september; fjölbreyttur og skemmtilegur!

 

Öll börn á skólaaldri eru hvött til þess að taka þátt. 

 

Í Átthagastofu verður sett upp Sumarlestur 2024 sýning.
Þar keppast grunnskólabörn Reykjanesbæjar um það hvaða skóli les flestar bækur í sumar. 
Allir skólarnir eiga sinn einkennislit og eftir hverja bók sem barnið les bætist við t.d. laufblað, fiskur eða fugl í lit skólans sem barnið er í. 
 
Yfir sumartímann er hægt að fylgjast með hvaða skóli er að standa sig best og í lok sumars fær skólinn sem las flestar bækur peningaverðlaun fyrir bókakaupum í skólann sinn

Lestraráskorun og ofurhetjuspil

Í sumar hvetjum við öll til að setja á sig ofurhetjuskikkjuna og taka þátt í Sumarlestri almenningsbókasafnanna. Lestur veitir ofurkraft, því meira sem þú lest, því meira lærir þú og skilur. 

Í Bókasafni Reykjanesbæjar eða öðru almenningsbókasafni færðu sumarlestursheftið. Það inniheldur 6 lestraráskoranir og skemmtilegt ofurhetjuspil. Í hvert sinn sem áskorun lýkur kvittar foreldri/forráðamaður og lestrarhetjan heimsækir bókasafnið með staðfestinguna til þess að fá límmiða til að líma á spilaborðið.

lestrarhetjan með borðspilið

Lestrarhetjan til bjargar í Skarkalabæ

Spilaborðið er mynd af Skarkalabæ. Í Skarkalabæ er allt í rugli! Það þarf að bjarga fólki og furðuverum úr bráðri hættu og það strax! Þú getur verið lestrarhetjan sem bjargar deginum með aðal ofurkraftinum, orðaforðanum! Spilið er samvinnuspil þar sem spilarar hjálpast að við að bjarga fólki og furðuverum í vanda. Spilarar skiptast á að vera hetjan á meðan hinir giska á hverjum/hverju lestrarhetjan ætlar að bjarga á myndinni.

Með hverjum límmiða sjáum við enn betur hvað það er sem er í gangi í Skarkalabæ. Þannig stækkar spilið með hverri lestraráskorun sem lestrarhetjan klárar í sumar.

Myndirnar eru eftir Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur og borðspilið er hannað af Steingerði Lóu Gunnarsdóttur. Hugmyndavinnan er unnin í samstarfi við vinnuhóp sem er skipaður af barnabókavörðum á almenningsbókasöfnum um allt land og er efnið gefið út af Miðstöð menntunar og skólaþjónustu. 

 

Uppskeruhátíð sumarlestursins

Til þess að fagna skemmtilegum Sumarlestri verður Uppskeruhátíð föstudaginn 30. ágúst.
Grunnskólarnir sem hafna í 1. til 3. sæti fá viðurkenningarskjal og peningaverðlaun fyrir bókakaupum.
Að því loknu verður Bingo í miðjunni og veglegir vinningar í boði.
 
Líf og fjör framundan í Bókasafni Reykjanesbæjar"

 

Bókasafnsskírteini fyrir 18 ára og yngri eru gjaldfrjáls.

 

 

Þátttökuseðill 

 

Sumarlesturbingó - 1 (pdf)  

 

Bókaskrá (pdf)