Beint í efni

Ærslabelgir eru vinsæl leiksvæði þar sem börn geta hoppað og hreyft sig utandyra. Þeir eru staðsettir við Tómstundamiðstöðina á Hafnargötu 88 og við Skógarbraut á Ásbrú.

Ærslabelgirnir nýtast til leikja og útiveru, sérstaklega yfir sumartímann. Mikilvægt er að farið sé eftir leiðbeiningum á staðnum og að börn séu undir eftirliti fullorðinna.

Nánari upplýsingar um staðsetningu má finna á kortavef Reykjanesbæjar undir "Íþróttir og útivist".

Ærslabelgir - Reykjanesbær