Neyðarstjórn Reykjanesbæjar hefur það hlutverk að samhæfa aðgerðir og grípa til neyðarráðstafana þegar neyðarástand skapast. Markmiðið er að forgangsraða lögbundinni þjónustu, tryggja samfélagslega mikilvæga starfsemi, verja almannaheill og lágmarka samfélagslegan skaða.
Neyðarstjórn er virkjuð þegar öryggi eða innviðum samfélagsins er ógnað, til dæmis vegna náttúruvár, umhverfis- og heilsuvár, tæknivár eða annars hættuástands.
Við neyðarstig viðbragðsáætlana er neyðarstjórn virkjuð. Að öðru leyti helst stjórnskipulag Reykjanesbæjar óbreytt og ber hver stjórnandi ábyrgð á sínum starfsvettvangi samkvæmt hefðbundnu skipulagi.
Aðalmenn
- Bæjarstjóri, formaður
- Formaður bæjarráðs, varaformaður
- Sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs
- Sviðsstjóri menntasviðs
- Sviðsstjóri velferðarsviðs
- Öryggis- og vinnuverndarfulltrúi
Varamenn
- Aðstoðarmaður bæjarstjóra
- Mannauðsstjóri
- Markaðsstjóri
Síðustu fundargerðir
- Bæjarráð Reykjanesbæjar
1586. fundur bæjarráðs Reykjanesbæjar
- Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa
412. afgreiðslufundur byggingarfulltrúa
- Leikskólaráð
4. fundur leikskólaráðs Reykjanesbæjar
- Skipulagsráð
399. fundur skipulagsráðs Reykjanesbæjar
- Íþrótta-, tómstunda- og menningarráð
209. fundur íþrótta-, tómstunda og menningarráðs Reykjanesbæjar