Markmið, starfssvið, starfsreglur og viðfangsefni:
1. Markmið
Markmið SAMTAKA-hópsins(hér eftir skammstafað Sh) er að fyrirbyggja og taka á þeim vandamálum sem upp koma hverju sinni til að bæta umhverfi barna og ungmenna í Reykjanesbæ. Hlutverk Sh. er jafnframt að fylgjast með og þróa nýjungar varðandi úrræði í forvarnarmálum, koma hugmyndum á framfæri við stofnanir og félagasamtök og vera ráðgefandi um stofnun ýmissa meðferðarúrræða.
2. Leiðir
SAMTAKA-hópurinn skal fylgjast með hópamyndun meðal barna og unglinga og nálgast þá áður en til vandamála og alvarlegra árekstra við umhverfið kemur. Sh. skal hafa yfirsýn yfir meðferðar-og uppeldisúrræði sem til staðar eru í bæjarfélaginu. Sh. skal safna saman upplýsingum, veita stuðning og samræma aðgerðir. Fulltrúar í Sh. deila upplýsingum um áhyggjuefni sín, varðandi málefni barna og unglinga innan sinnar stofnunar, til að geta fyrirbyggt óæskilega hegðun eða vandamál og unnið að úrræðum í samvinnu við aðra fulltrúa hópsins eftir því sem við á. Ekki verður fjallað beint um málefni einstaklinga nema í þeim tilvikum þar sem hópurinn er tilkvaddur af viðeigandi stofnun eða meðferðaraðila til samstarfs. Þó er Sh. heimilt að ræða málefni einstaklinga, til að hægt sé að kanna hvort hegðun umrædds einstaklings eða ákveðinna einstaklinga séu áhyggjuefni hjá fleiri samstarfsaðilum, s.s. lögreglu, barnavernd eða skólum og ef svo er þá sé hægt að grípa inn í og byggja upp úrræði til lausnar vandanum.
3. Um starfshætti
Sh. setur sér starfsreglur. Forræði með starfi Sh. er á hendi Fræðslusviðs Reykjanesbæjar. Formaður samtakahópsins boðar til fundar og stjórnar þeim. Halda skal fundargerð sem trúnaðarmál. Fundi skal halda svo oft sem þurfa þykir og málefni gefa tilefni til, en þó ekki sjaldnar en einu sinni í mánuði. Sh. skal haga störfum sínum í samræmi við góða stjórnsýslu og þau lög sem við á, s.s. Barnaverndarlög , Lög um grunnskóla, Lög um persónuvernd, Upplýsingalög o.s.frv.
4. Skipun í SAMTAKA-hópinn
Eftirfarandi eiga sæti í Sh: Fullrúi Fræðslusviðs - Fulltrúi Velferðarsviðs - Náms-og starfsráðgjafar í grunnskólum Reykjanesbæjar - Fulltrúar skólahjúkrunar í Reykjanesbæ - Verkefnastjórar FFGÍR, Foreldrafélög grunnskólanna í Reykjanesbæ, forvarnarfulltrúi Fjölbrautaskóla Suðurnesja,varðstjóri forvarna hjá Lögreglunni á Suðurnesjum 5. Erindisbréf SAMTAKA-hópsins skal endurskoða eftir þörfum. Telji Sh. þörf á breytingum á erindisbréfi skal leggja tillögur til breytinga fyrir fund Íþrótta-og tómstundaráðs til afgreiðslu. Fyrirspurn og eða ábendingu til Samtakahópsins er hægt að senda á forvarnir@reykjanesbaer.is