Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Björgin – geðræktarmiðstöð Suðurnesja

Björgin er endurhæfing og athvarf fyrir fólk með geðheilsuvanda. Öll eru velkomin í Björgina og ekki þarf tilvísun til að sækja þjónustuna.

Í Björginni leggjum við áherslu á hlýlegt og öruggt umhverfi þar sem fólk fær stuðning, ráðgjöf og tækifæri til virkni á eigin forsendum.

Hægt er að mæta á staðinn, hafa samband í síma 420 3270 eða senda tölvupóst á bjorgin@reykjanesbaer.is til að fá nánari upplýsingar.

Í Björginni viljum við rjúfa félagslega einangrun, efla sjálfstæði einstaklinga, auka samfélagsþátttöku, draga úr stofnanainnlögnum, auka þekkingu almennings á geðheilbrigðismálum, þjálfa fólk í atvinnutengdri hegðun og styðja við endurhæfingu til náms eða vinnu

Endurhæfing

Endurhæfing í Björginni miðar að því að gefa fólki tækifæri til að efla færni sína á ýmsum sviðum. Boðið er upp á fræðslu, hópastarf, námskeið og ráðgjöf þar sem áhersla er lögð á uppbyggileg málefni sem styðja við bata.

Allir sem taka þátt í endurhæfingu fá ráðgjafa sem heldur utan um ferlið með viðkomandi. Gerð er endurhæfingaráætlun þar sem fram kemur hvernig endurhæfingin fer fram. Hún getur meðal annars falið í sér:

  • hópatíma tvisvar í viku
  • regluleg viðtöl við ráðgjafa
  • virkni yfir daginn

Aðstoð er veitt við umsókn um endurhæfingarlífeyri hjá Tryggingastofnun (TR). Gerð er krafa um 80% mætingu í endurhæfingu.

Staðsetning og opnunartímar

Björgin – geðræktarmiðstöð Suðurnesja
Suðurgata 12–14 og 15–17
Sími: 420 3270
Netfang: bjorgin@reykjanesbaer.is

  • Opið mánudaga til fimmtudaga: kl. 08:15 – 15:30
  • Opið föstudaga: kl. 08:15 – 12:00