Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Hæfingarstöðin

Hæfingarstöðin er dagþjónusta fyrir fatlað fólk á Suðurnesjum. Þar fá þátttakendur tækifæri til að efla hæfni sína til starfa og auka þátttöku í daglegu lífi.

Starfað er eftir hugmyndafræðinni um þjónandi leiðsögn, þar sem áhersla er lögð á styrkleika hvers og eins og stuðning veittur út frá einstaklingsbundnum þörfum.

Þjónusta og starfsemi

Hæfingarstöðin býður upp á fjölbreytta þjónustu sem miðar að því að:

  • efla sjálfstæði
  • styrkja atvinnutengda færni
  • auka félagslega færni og þátttöku

Verkefnin eru fjölbreytt og taka mið af áhuga og getu þátttakenda. Meðal verkefna er búðin Hæfó, þar sem seldar eru vörur sem þátttakendur og starfsfólk vinna saman að.

Úrvalið og starfsemina má sjá á Facebook-síðu Hæfó Smiðju

Umsókn

Sækja um í Hæfingarstöðina

Til að sækja um þjónustu í Hæfingarstöðinni þarftu að vera 18 ára eða eldri, vera með fötlunargreiningu og á örorkubótum, og eiga lögheimili í Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ eða Sveitarfélaginu Vogum.

Kostnaður

  • Gjald er 386 krónur á dag ef einstaklingur er í hádegismat.

Hafa samband

Hæfingarstöðin er staðsett að Keilisbraut 755 í Reykjanesbæ.

Hægt er að hafa samband: