Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Fjármála- og stjórnsýslusvið

Fjármála- og stjórnsýslusvið veitir þjónustu og ráðgjöf þvert á starfsemi Reykjanesbæjar. Sviðið hefur forystu um vandaða stjórnsýslu, þróun vinnubragða og aukna rafræna þjónustu.

Fjármál og rekstur

Sviðið sér um fjármálastjórn bæjarsjóðs og stofnana hans. Helstu verkefni eru að:

  • vinna og miðla fjárhagsupplýsingum
  • fylgjast með tekjum og útgjöldum
  • hafa umsjón með lána- og sjóðastýringu
  • samræma innkaup sveitarfélagsins samkvæmt lögum um opinber innkaup nr. 120/2016
  • bæta verklag og auka hagkvæmni í rekstri

Launa- og kjaramál

Launa- og kjaradeild sér um launavinnslu og styður stjórnendur í ráðningarmálum. Deildin hefur einnig umsjón með jafnlaunakerfi sveitarfélagsins.

Mannauðsmál

Mannauðsdeild veitir stjórnendum ráðgjöf og stuðning í mannauðsmálum.

Við leggjum áherslu á að:

  • laða að öflugt starfsfólk
  • styðja við starfsþróun
  • skapa góðan vinnustað
  • efla símenntun og jafnrétti

Markmiðið er að starfsfólk geti veitt íbúum og gestum góða þjónustu sem byggir á trausti og virðingu.

Persónuvernd

Persónuverndarmál veita starfsfólki stuðning og fræðslu um meðferð persónuupplýsinga samkvæmt lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga nr. 90/2018.

Skjalavarsla og fundarþjónusta

Skjaladeild sér um skjalavörslu, notendaaðstoð og fundaritun fyrir nefndir og ráð sveitarfélagsins.

Skjalavarsla fer fram samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn nr. 77/2014.