Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Forvarnir í Reykjanesbæ

Reykjanesbær vinnur markvisst að forvörnum í samvinnu við íbúa og fjölbreytta samstarfsaðila.

Forvarnarstarf gengur þvert á öll svið bæjarins og snýst um að skapa aðstæður sem styðja við heilbrigði, öryggi og vellíðan fólks á öllum aldri.

Forvarnir eru mikilvægur hluti af því að byggja upp sterkt samfélag þar sem börn, ungmenni og fjölskyldur fá tækifæri til að blómstra.

Markmið forvarnarstarfs

Meginmarkmið forvarnarstarfs í Reykjanesbæ eru að:

  • stuðla að auknu heilbrigði og hamingju barna, ungmenna og fullorðinna
  • skapa aðstæður sem hafa jákvæð áhrif á íbúa
  • efla sjálfstraust og sjálfsmat barna og ungmenna
  • stuðla að betri menntun
  • auka öryggi á heimilum og bæta umhverfi barna og ungmenna

Ábendingar um forvarnarmál

Ábendingar og álit varðandi forvarnarmál má senda á netfangið forvarnir@reykjanesbaer.is

SAMTAKA-hópurinn

SAMTAKA-hópurinn í Reykjanesbæ er þverfaglegur samstarfshópur um forvarnir. Í hópnum sitja fulltrúar Reykjanesbæjar ásamt fulltrúum foreldra, grunn- og framhaldsskóla, lögreglu og heilbrigðisþjónustu.

Markmið hópsins er að samræma forvarnarstarf, efla samstarf og tryggja heildstæða nálgun í forvörnum í bæjarfélaginu.

Nánar má lesa um hlutverk og markmið hópsins í erindisbréfi SAMTAKA-hópsins.

Helstu verkefni forvarnarstarfs í Reykjanesbæ eru að móta áætlanir, halda utan um verkefni og fylgjast með árangri þeirra. Reglulega er metið hvað gengur vel, hvar megi bæta og hvar þörf er á nýjum verkefnum.

Reykjanesbær tekur meðal annars þátt í eftirfarandi forvarnarverkefnum:

  • Heilsueflandi samfélag, á vegum embættis landlæknis, sem styður samfélög í að skapa umhverfi og aðstæður sem stuðla að heilbrigðum lifnaðarháttum og vellíðan allra íbúa. Nánari upplýsingar má finna á vefnum Heilsueflandi samfélag á Ísland.is.
  • Forvarnardagur ungra ökumanna, fyrir nemendur í Fjölbrautaskóla Suðurnesja, með áherslu á öryggi í umferðinni.
  • Forvarnardagurinn, þar sem sjónum er beint að nemendum í 9. bekk og á fyrsta ári í framhaldsskóla og þau hvött til að miðla reynslu sinni og upplifun.
  • Heilsu- og forvarnarvika Reykjanesbæjar, þar sem lögð er áhersla á að draga úr áhættuþáttum og styrkja verndandi þætti með þátttöku bæjarbúa.
  • Samvinna við Rannsóknir og Greiningu og Íslensku æskulýðsrannsóknina, til að fylgjast náið með líðan barna og ungmenna í Reykjanesbæ.
  • Fræðsla í grunn- og framhaldsskólum, sem hefur verið stóraukin að beiðni Ungmennaráðs Reykjanesbæjar.
  • Allir með forvarnarverkefni, sem miðar að því að auka þátttöku barna í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi og styrkja leiðtoga og þjálfara í markvissri vinnu með börnum og ungmennum.