Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Heimildamynd um Þóri Baldursson sýnd í Hljómahöll

Á laugardag, 28. mars kl. 20:00, verður heimildamyndin Maðurinn sem elskar tónlist sýnd í Bergi í Hljómahöll. Aðgangur er ókeypis og eru allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.

Myndin fjallar um líf og störf Þóris Baldurssonar, eins ástsælasta tónlistarmanns þjóðarinnar, sem á að baki langan og farsælan feril bæði hér á landi og erlendis. Í myndinni er dregin upp persónuleg og lifandi mynd af manni sem hefur helgað líf sitt tónlistinni og haft djúp áhrif á íslenskt tónlistarlíf.

Sýningin er liður í heimsókn Þóris til heimahaganna, en hann dvelur í Reykjanesbæ um þessar mundir og fagnar 82 ára afmæli sínu þann 29. mars. Með heimsókninni snýr hann aftur á slóðir þar sem tónlistarferill hans átti upphaf sitt.

Gestum gefst tækifæri til að upplifa einstaka heimildarmynd um líf og list Þóris í notalegu umhverfi Bergs, og verður bar opinn á staðnum fyrir þá sem vilja njóta veitinga á meðan á viðburði stendur.

Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Quisque tempor, orci non consectetur sodales, sapien enim sagittis mi, eget ultrices arcu velit eu turpis.

Suspendisse eu purus
Sed ut tempus magna

Integer malesuada libero purus, sagittis semper nunc gravida non. Suspendisse eu purus mauris. Vestibulum sed velit urna. Quisque malesuada egestas eros sodales pulvinar. Nam eleifend dolor nec purus convallis, at laoreet erat hendrerit. Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Quisque tempor nec elit eu aliquet.