Reykjanesbær er þátttakandi í verkefninu Heilsueflandi samfélag á vegum Embættis landlæknis. Verkefnið byggir á heildrænni nálgun þar sem sveitarfélög, stofnanir, félagasamtök og íbúar vinna saman að því að skapa umhverfi sem styður við heilbrigða lífshætti, heilsu og vellíðan.
Markmið verkefnisins er að efla líkamlega, andlega og félagslega heilsu íbúa með því að stuðla að heilbrigðum lífsstíl og skapa aðstæður sem auðvelda fólki að velja heilsusamlega kosti í daglegu lífi.
Reykjanesbær gerðist formlegur aðili að verkefninu árið 2016. Frá þeim tíma hefur verið unnið markvisst að heilsueflingu í samfélaginu í samstarfi við skóla, íþróttafélög, stofnanir og aðra aðila.
Heilsueflandi skólastig
Í Reykjanesbæ taka leikskólar, grunnskólar og framhaldsskólar þátt í verkefnum sem tengjast heilsueflingu. Þar er meðal annars lögð áhersla á hreyfingu, góða næringu, andlega vellíðan og fræðslu um heilbrigða lífshætti.
Flestir leikskólar sveitarfélagsins taka þátt í verkefninu Heilsueflandi leikskóli, þar sem markvisst er unnið að því að stuðla að góðri líkamlegri og andlegri heilsu barna og starfsfólks.
Lýðheilsustefna Reykjanesbæjar
Heilsueflandi samfélag tengist einnig lýðheilsustefnu Reykjanesbæjar, sem miðar að því að efla vellíðan og lífsgæði íbúa með heildrænni nálgun að heilsu og forvörnum.