
Súlan – menningarverðlaun Reykjanesbæjar
Menningarverðlaun Reykjanesbæjar, Súlan, eru veitt árlega einstaklingi, hópi eða fyrirtæki sem hefur með starfi sínu auðgað menningarlíf í Reykjanesbæ.
Ár hvert er auglýst eftir tilnefningum og geta íbúar sent inn tillögur að verðlaunahafa. Íþrótta-, tómstunda- og menningarráð Reykjanesbæjar tekur ákvörðun um hver hlýtur Súluna.
Listamaður Reykjanesbæjar
Nafnbótin Listamaður Reykjanesbæjar er heiðursviðurkenning sem veitt er listamanni sem hefur skarað fram úr á sínu sviði og haft áhrif á lista- og menningarlíf í Reykjanesbæ eða vakið athygli fyrir list sína.
Listamaðurinn skal hafa sterk tengsl við Reykjanesbæ, til dæmis með búsetu, uppruna, starfi eða framlagi til menningarlífs bæjarins. Allar listgreinar og listform koma til greina.
Auglýst er eftir tillögum að Listamanni Reykjanesbæjar í lok hvers kjörtímabils og geta einstaklingar, félög, stofnanir og aðrir sent inn rökstuddar tillögur. Bæjarráð tekur endanlega ákvörðun um hver hlýtur nafnbótina.