Mynd 1 af 6
Skessan í hellinum er allra vinur og hefur tekið á móti börnum og fjölskyldum í helli sínum við smábátahöfnina í Gróf frá árinu 2008. Þar situr hún gjarnan í ruggustólnum sínum og tekur fagnandi á móti gestum – og ekki síst snuddum sem börn hafa ekki lengur not fyrir.
Skessan er hugverk Herdísar Egilsdóttur og á rætur sínar í ástsælum sögum hennar um Siggu og skessuna í fjallinu. Hellir Skessunnar hefur orðið eitt af skemmtilegri kennileitum Reykjanesbæjar og vinsæll viðkomustaður fyrir unga sem aldna.





